Veröld/Fólk
|
1 Fólk - fréttir
| Morgunblaðið
| 12.5.2009
| 5:30
| Uppfært
6:25
Sinfónían stofnar Ungsveit
„Með því að nýta aðstöðu okkar og þekkingu getum við látið þennan draum okkar rætast,“ segir Arna Kristín Einarsdóttir tónleikastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, en hljómsveitin kallar í haust saman í fyrsta sinn Ungsveit Sinfóníuhljómsveitarinnar.
Tónlistarnemar sem langt eru komnir í námi fá tækifæri til að sækja hljómsveitarnámskeið undir stjórn Rumons Gamba og í námskeiðslok heldur Ungsveitin tónleika á vegum hljómsveitarinnar.
„Við erum mjög meðvituð um það að leiðin að því að fjölga áheyrendum, sem þó eru margir í dag, er sú að vera í virku samstarfi við ungt fólk.“
Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu í da.g
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









