Veröld/Fólk
|
1 Fólk - fréttir
| Morgunblaðið
| 12.5.2009
| 5:30
| Uppfært
6:21
Spáir Noregi sigri í Evróvisjón
Evróvisjónaðdáandinn og Grafarvogsbúinn Rakel Árnadóttir er alveg með á hreinu hvaða land fari með sigur af hólmi í keppninni í ár. „Það verður Noregur,“ segir hún og brosir. Þegar blaðamaður spyr hvers vegna horfir hún á hann í forundran: „Hefurðu ekki heyrt lagið?“ spyr hún og jú, blaðamaður verður að viðurkenna að hann sé líka ánægður með framlag Norðmanna. Rakel útskýrir þá að ryþminn, fiðlutónarnir og dansinn gefi laginu styrk sinn.
Það er engum ofsögum sagt að Rakel sé mikill Evróvisjónaðdáandi, enda hefur hún ekki misst af keppni frá 1988 og á mörg uppáhalds Evróvisjónlög í gegnum tíðina. Hún á líka allar Evróvisjónkeppnir sem fram hafa farið frá 1957 á dvd-diskum – utan 1964, sú filma brann víst og er illfáanleg.
Þá er hún komin með diskinn með Evróvisjónlögunum 2009 í hendur og búin að stúdera lögin frá því í byrjun maí. Hún er líka þegar búin að tryggja sér matinn fyrir Evróvisjónveisluna, enda ætlar hún að fylgjast spennt með ásamt nokkrum góðum vinum.
Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









