Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.

Hallgrímur Helgason. Þorkell Þorkelsson

Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum.

Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann  við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts.

Gagnrýnandinn, Dag Jönsson, segir að Rokland sé merkileg bók, sem sé knúin afram af málæði, sem sveiflist milli þess stórkarlalega, kómíska og innantóma. Og þótt heimskautaspámaðurinn Böddi sé að sjálfsögðu skopmynd sé samfélagsgagnrýnin alvarleg.

Grein DN um Rokland

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Heima er besta heimildarmynd heims á Imdb.com

Sigur Rós við Snæfellsskála.
12.5.2009 Heimildarmyndin Heima, sem fjallar um hljómsveitina Sigur Rós, er besta heimildarmynd allra tíma ef marka má kvikmyndavefinn Internet Movie Database, Imdb.com. Notendur vefjarins, sem er einn allra vinsælasti kvikmyndavefur heims, geta gefið hverri mynd einkunn frá einum upp í tíu, og í flokki heimildarmynda er Heima á toppnum með meðaleinkunnina 8,7. Meira »

finnur.is