Tom alltaf í svörtum buxum
Tom Jones. Reuters
Velski stórsöngvarinn Tom Jones klæðist alltaf svörtum buxum þegar hann kemur fram opinberlega svo að svitablettirnir sjáist síður. Þetta atvinnuleyndarmál upplýsti söngvarinn í viðtali við Observer-tímaritið á dögunum en þar tjáði hann blaðamanni að hann væri með mjög virka svitakirtla.
„Ég svitna mikið þegar ég er á sviði. Þess vegna er nauðsynlegt að buxurnar séu svartar svo svitablettirnir sjáist ekki. Þegar ég var að byrja að syngja gekk ég alltaf í mjög þröngum buxum – á þeim tíma gengu að vísu allir í þröngum buxum en fáir í jafn þröngum buxum og ég. Einu sinni þegar ég var í miðju lagi í sjónvarpsþætti í Cardiff kraup ég með þeim afleiðingum að buxurnar rifnuðu að aftan. Til að slá þessu upp í grín sagði ég við áhorfendurnar: Þetta er tileinkað þeim sem halda því fram að ég gangi ekki í nærbuxum, beygði mig fram og sýndi í rauðu nærbuxurnar. Ég hef í seinni tíð tekið þetta atriði af dagskránni.“









