Tekjuhæstu myndirnar á Íslandi: Trekkarar troðfylltu bíóhúsin
Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann.
Miðað við þær tölur er ljóst að aðdáendur Star Trek bíómyndanna og sjónvarpsþáttanna eru ansi margir hér á landi, en þeir eru jafnan nefndir Trekkarar.
Myndin hlaut annars góða dóma hjá Sæbirni Valdimarssyni í Morgunblaðinu í gær en hann gaf henni 3,5 stjörnur af fimm mögulegum. „...þess ber að geta að hún er vel lukkuð, kraftmikil, hröð og í höndum leikara sem eru vel til þess fallnir að fást við goðsagnakennda forvera sína,“ sagði Sæbjörn meðal annars.
Önnur ævintýramynd situr svo í öðru sætinu, X-Men Origins: Wolverine. 2.372 sáu myndina um helgina og voru tekjurnar því rúmar tvær milljónir króna. Frá upphafi hafa hins vegar rúmlega 13.000 séð hana og heildartekjurnar því um 11,7 milljónir króna.
Loftleiðir í tólfta sæti
Önnur ný mynd stekkur svo beint í fimmta sætið en þar er á ferðinni breska gamanmyndin Boat that Rocked. Myndin skartar hinum stórskemmtilega Philip Seymour Hoffman í aðalhlutverkinu, en í stuttu máli segir hún frá sjóræningjaútvarpi á dalli úti á Norðursjó á sjöunda áratugnum. 920 manns sáu myndina um helgina og voru tekjurnar um 837 þúsund krónur.Þá má geta þess að íslenska heimildarmyndin Alfreð Elíasson og Loftleiðir nær ekki inn á topp tíu, en hún situr í tólfta sætinu með 384 gesti um helgina og tekjur upp á 351 þúsund krónur. Töluvert fleiri sáu Draumalandið, eða 640 manns.









