Veðbankar spá Íslandi 7. sæti

Jóhanna Guðrún Jónsdóttir. stækka

Jóhanna Guðrún Jónsdóttir. Reuters

Veðbankar spá Íslandi 7. sæti í úrslitum Evróvisjón söngvakeppninnar í Moskvu á morgun. Líklegast er talið, að Noregur fari með sigur af hólmi, Grikkland verði í 2. sæti og að Tyrkland og England berjist um 3. sætið.

Æfingar standa nú yfir í Moskvu fyrir keppnina á morgun. Á opinberum vef keppninnar segir, að bakgrunnurinn á sviðinu, þegar íslenska lagið sé flutt, sé einn sá tilkomumesti í keppninni en þar sigla skip fyrir fullum seglum og höfrungar stökkva. Sviðsmyndin sé blá sem hæfi laginu fullkomlega.

Breska tónskáldið Andrew Lloyd Webber, sem samdi enska lagið í keppninni, mætti í höllina á fyrstu búningaæfinguna í dag, en hann hefur ekki látið sjá sig fram að þessu.

Á blaðamannafundi eftir æfinguna viðurkenndi hann að hann væri að heyra flest lögin í fyrsta sinn. Hann nefndi samt að tveir vina sinna, Ronan Keating og Chris Neil ættu lög í keppninni.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Þetta er algjör hvirfilbylur

Elín tekur þátt í að setja Arkadíu á svið í fyrsta sinn á Íslandi.
15:31 Elín Björnsdóttir hefur haft í nógu að snúast undanfarið enda situr hún í stjórn leikfélagsins í MH auk þess sem hún fer með stórt hlutverk í sýningunni Arkadía sem verður frumsýnd á þriðjudaginn. Meira »

Fallinn fyrir Carmen Electra

Simon Cowell.
11:00 Simon Cowell getur ekki haft hendurnar af Baywatch-stjörnunni eftir að hann réð hana í vinnu.  Meira »

Keppa fyrir Ísland í Stora Daldansen

Þórey Birgisdóttir, Ellen Margrét Bæhrenz og Karl Friðrik Hjaltason.
12:22 Þrír nemendur í Listdansskóla Íslands, Ellen Margrét Bæhrenz, Þórey Birgisdóttir og Karl Friðrik Hjaltason verða fulltrúar Íslands í Stora Daldansen í Svíþjóð. Meira »

Ástfangin á sviðinu

Ólöf og Víðir taka þátt í söngleiknum Bugsy Malone sem Verzló setur upp.
10:51 Þetta árið setur Verzlunarskólinn upp söngleikinn sígilda um Bugsy Malone. Víðir Þór og Ólöf Kristín fara með aðalhlutverk í sýningunni sem sýnd er í Austurbæ. Meira »

finnur.is