Ísland í 2. sæti í Moskvu
Ísland varð í 2. sæti í Evróvisjón söngvakeppninni í Moskvu í kvöld. Norðmenn sigruðu með miklum yfirburðum, fengu 387 stig og settu stigamet, fengu 12 stig frá 16 af þeim 42 þjóðum sem gáfu stig en Íslendingar fengu 218 stig. Aserbaíjan endaði í 3. sæti með 207 stig.
Íslendingar hafa einu sinni áður náð 2. sæti í Evróvisjón, árið 1999 þegar Selma
Björnsdóttir var fulltrúi þjóðarinnar.
Alexander Rybak flutti lag sitt Fairytale fyrir hönd Noregs í keppninni. Rybak, sem varð 23 ára í vikunni, er menntaður tónlistarmaður. Hann er fæddur í Hvíta-Rússlandi en uppalinn á Nesodden í Noregi.
„Þakka ykkur, Rússar. Þetta var dásamlegt. Þakka ykkur fyrir," sagði hann þegar hann tók við verðlaunagripnum. „Þið eruð bestu áheyrendur í heimi."
Norðmenn hafa tvívegis áður sigrað í Evróvisjón: 1985 þegar Bobbysocks sungu La det swinge, og 1995 þegar Secret Gardeen flutti Nocturne.
Þrjár þjóðir gáfu Íslandi 12 stig, Norðmenn, Maltverjar og Írar. Danir, Rúmenar, Svíar, Finnar og Ísraelsmenn gáfu Íslandi 10 stig, Andorrabúar, Bretar, Eistlendingar, Lettar, Litháar og Portúgalar gáfu Íslandi 8 stig. Hollendingar, Ungverjar, Þjóðverjar og Albanar gáfu 7 stig, Slóvakar 6 stig, Armenar, Slóvenar, Svartfellingar, Svisslendingar, Búlgarar og Kýpurbúar 5 stig, Grikkir 4, Rússar og Moldóvar 3, Hvítrússar, Króatar, Makedóníumenn, Tékkar og Tyrkir 2 stig og Pólverjar 1 stig.
Röðin í úrslitunum í kvöld var þessi:
- Noregur - 387 stig
- Ísland - 218 stig
- Aserbaídjan - 207 stig
- Tyrkland - 177 stig
- Bretland - 173 stig
- Eistland - 129 stig
- Grikkland - 120 stig
- Frakkland - 107 stig
- Bosnía & Herzegóvína - 106 stig
- Armenía - 92 stig
- Rússland - 91 stig
- Úkraína - 76 stig
- Danmörk - 74 stig
- Moldóvía - 69 stig
- Portúgal - 57 stig
- Ísrael - 53 stig
- Albanía - 48 stig
- Króatía - 45 stig
- Rúmenía - 40 stig
- Þýskaland - 35 stig
- Svíþjóð - 33 stig
- Malta - 31 stig
- Litháen - 23 stig
- Spánn - 23 stig
- Finnland - 22 stig.
- Lokadagur leirmunasýningar
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
- Þórunn Erna bæjarlistamaður Garðabæjar
- Rauk út í miðri áheyrnarprufu
- UN Women styrktartónleikar á Gauknum
- „Erum ekkert að fara á taugum“
- Vona að Spánn sigri ekki
- Frost ekki bara á Fróni?
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Aldrei boðið á stefnumót
- Orðljótur í Cannes
- Hróaðu þig niður!










