„Menn vita af myndinni og eru spenntir“

Helgi Björnsson í hlutverki sínu í Reykjavík Whale Watching Massacre. stækka

Helgi Björnsson í hlutverki sínu í Reykjavík Whale Watching Massacre.

Morgunblaðið ingveldur@mbl.is
„Við erum í viðræðum við fjölda stórra dreifingaraðila en við erum ekki búnir að ákveða ennþá hverja við semjum við. Viðræður eru samt langt komnar og þetta kemur í ljós fljótlega,“ segir Júlíus Kemp kvikmyndagerðarmaður sem er með myndina Reykjavík Whale Watching Massacre á kvikmyndahátíðinni í Cannes.

Myndinni var tryggð íslensk dreifing í Cannes í fyrradag þegar Júlíus, Ingvar Þórðarson og Gísli Gíslason gengu frá dreifingarsamningi við Árna Samúelsson í Sambíóunum. „Hún verður frumsýnd á Íslandi 09.09.09 og ætla Sambíóin bæði að vera með hana á stafrænu formi og á filmu,“ segir Júlíus og bætir við að það hafi verið gott að nýta tímann í Cannes og tryggja íslenska dreifingu.

Reykjavík Whale Watching Massacre hefur verið vel tekið í Cannes og verður Júlíus var við mikla eftirvæntingu. „Við byrjuðum á því að sýna úr henni í janúar á Gautaborgarhátíðinni og það hefur myndast nokkuð gott orðspor í kringum hana eftir það, þó þetta sé stór heimur er hann ansi lítill líka og það tala allir saman. Menn vita af myndinni og eru spenntir.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið myndskeið

Flotilla rehearses for British Queen's Jubilee
Í gær, 20:47 Mikil hátíðahöld verða um gjörvallt Bretland næstu helgi, þegar 60 ára krýningarafmæli Elísabetar II Englandsdrottningar, demantsafmælinu, verður fagnað. Meðal atriða á hátíðinni verður sigling báta af ýmsum stærðum og gerðum eftir Thames-ánni. Meira »

Gullpálminn veittur í dag

Michael Haneke ékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag fyrir mynd sína Love.
Í gær, 18:08 Kvikmynd ástralska leikstjórans Michaels Haneke, Love, fékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag. Í myndinni er sögð saga trygglynds eiginmanns í París sem annast dauðvona eiginkonu sína. Meira »

Danska höllin fékk BAFTA-verðlaun

Sidse Babette Knudsen í hlutverki sínu sem forsætisráðherrann Birgitte Nyborg.
Í gær, 19:34 Dönsku sjónvarpsþættirnir Höllin, eða Borgen eins og þeir heita á frummálinu, fengu bresku BAFTA-verðlaunin í dag sem bestu erlendu sjónvarpsþættirnir. Meira »

Evróvisjón verður í Svíþjóð að ári

Loreen vann Evróvisjón 2012.
Í gær, 14:34 Ljóst er að næsta Evróvisjónkeppni verður haldin í Svíþjóð og er þegar búið að ákveða dagsetningu; laugardaginn 18. maí. Keppnin verður sú 58. í röðinni. Sigurvegarinn, Loreen frá Svíþjóð, var hrærð yfir sigrinum. Meira »

finnur.is