Áttatíu ár frá fæðingu Önnu Frank

Anna Frank.

Anna Frank. Reuters

Gyðingastúlkan Anna Frank, sem lét lífið í útrýmingarbúðum nasista, hefði orðið áttræð á síðasta föstudag hefði hún lifað. Í tilefni af því hefur æskuvinkona hennar Eva Schloss minnst hennar í viðtölum við fjölmiðla. Þetta kemur fram á fréttavef CNN.

Schloss segir Önnu hafa verið mikinn daðrara, sem hafi sífellt verið að skipta um hárgreiðslu og koma sér í vandræði með sögum sínum.

 „Hún fékk dagbókina sína árið 1942, þannig að pabbi hennar hefur vitað hversu mikinn áhuga hún hafði á að skrifa. Ég vissi líka að hún bjó til sögur. Hún talaði mikið og var kölluð ungfrú Quack Quack. Hún þurfti oft að skrifa hundrað sinnum „Ég ætla ekki að tala svona mikið" en hún hafði augljóslega margt að segja," segir Schloss.

„Ég var feimin en hún var alltaf miðpunktur athyglinnar. Það voru tröppur sem við sátum oft á og þá safnaðist hópur barna í kring um hana. Hún daðraði mikið. Hún elskaði stráka. Hún var alltaf að sýna okkur hver væri kærastinn hennar í það og það skiptið. Hún hafði líka mikinn áhuga á fötum."

Dagbók Önnu Frank, sem skrifuð var er Anna og fjölskylda hennar voru í felum í Amsterdam, er ein mest lesna bók heims. Þau voru síðan handtekin og flutt í útrýmingarbúðir þar sem öll fjölskyldan lét lífið nema faðir Önnu. Hann gaf síðan út dagbók hennar að henni látinni.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Tólf ára bjargaði ættaróðalinu

21:37 Tólf ára piltur frá Wisconsin í Bandaríkjunum er orðinn hetja innan fjölskyldu sinnar, ef ekki víðar, eftir að hann bjargaði ömmu sinni frá því að vera borin út úr húsi sínu, sem hafði verið í eigu fjölskyldunnar í þrjá ættliði. Meira »

Ljósmyndagreining í Þjóðminjasafni

Fólk kemur með marga forvitnilega gripi til starfsmanna Þjóðminjasafnsins.
05:30 Ljósmyndagersemar leynast víða og í dag milli kl. 14 og 16 býðst gestum að koma í Þjóðminjasafn Íslands með gamlar ljósmyndir í greiningu. Meira »

Lagerfeld biðst afsökunar

Karl Lagerfeld er umdeildur maður.
11:05 Þýski tískuhönnuðurinn Karl Lagerfeld hefur beðið afsökunar á ummælum sínum um söngkonuna Adele, en hann sagði hann vera of feita. „Ég vil segja við Adele að ég er stærsti aðdáandi hennar,“ sagði Lagerfeld, sem mun iðrast sáran. Meira »

Matti sjokk og Messuguttarnir á Rósenberg

05:30 Hljómsveitin Matti sjokk og Messuguttarnir verður með tónleika á Café Rósenberg kl. 22 í kvöld í tilefni af útkomu plötunnar Ein sveitastemning. Meira »

finnur.is