David Beckham fær bætur

Beckham-hjónin
Beckham-hjónin ACTION IMAGES

Fótboltakappanum David Beckham hafa verið dæmdar bætur úr hendi blaðsins Daily Star vegna fréttar sem birtist í blaðinu í apríl um að hann hefði gert sér dælt við ungverska ofurfyrirsætu að nafni Mariann Fogarasy að loknum leik AC Milan í heimalandi hennar. Í fréttinni var gefið í skyn að kynni þeirra hafi verið af mjög nánu tagi.

Þetta kemur fram á fréttavef Sky.

Bótaupphæðin hefur ekki verið gerð opinber en ljóst er að hún er umtalsverð. The Daily Star hefur viðurkennt að frásögnin hafi ekki verið á rökum reist og beðið Beckham og fjölskyldu hans afsökunar. Beckham var ekki viðstaddur uppkvaðningu dómsins.

Fyrrum fóstra barna Beckham og Victoriu, eiginkonu hans og uppgjafakryddpíu, bað hjónakornin í liðinni viku afsökunar fyrir rétti á að hafa rofið trúnað um einkalíf þeirra.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant