Jackson líkt við Önnu Nicole

Aðdáendur Michael Jacksons syrgja hann við O2 höllina í London þar sem til stóð að ... stækka

Aðdáendur Michael Jacksons syrgja hann við O2 höllina í London þar sem til stóð að hann kæmi fram. Reuters

Brian Oxman, einn af lögfræðingum Jackson fjölskyldunnar, greindi frá því í sjónvarpsviðtali á CNN sjónvarpsstöðinni í dag að fjölskyldan hafi lengi haft áhyggjur af mikilli notkun hans á lyfseðilsskyldum lyfjum. Þá sakaði hann meðvirka samstarfsmenn hans um að hafa gert honum kleift að keyra sig áfram með misnotkun lyfja.

„Fólk telur mál Önnu Nicole Smith hafa snúist um misnotkun en það var ekkert í samanburði við það sem við höfum séð eiga sér stað í lífi Michael Jackson," sagði hann.

Þá sagði hann Jackson hafa verið undir gífurlegu álagi að undanförnu vegna fyrirhugaðrar endurkomu sinnar í sviðsljósið. Jackson hafði m.a. samið um að koma fram á stórtónleikum í London og stefndi að því að gefa út nýja plötu er hann lést í gær.

„Michael hafði mætt á æfingar nokkrum sinnum. Hann lagði sig virkilega fram um að geta gert þetta. Lyfjanotkun hans varð honum hins vegar til trafala. Meiðsl hans eftir slys á sviði - þar sem hann braut hryggjarlið og fótlegg við að detta af sviðinu - urðu honum til trafala,” sagði Oxman. „Ég veit ekki nákvæmlega hvaða lyf hann tók en samkvæmt þeim upplýsingum sem fjölskyldan hefur fengið þá var notkunin mikil.”

Staðhæft hefur verið í dag að Jackson hafi m.a. tekið verkjalyfið Demerol, sem er svipað morfíni og deyfilyfið Dilaudid.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Brosti hringinn þegar hún fékk stjörnuna

Jennifer Aniston með frægðarstjörnuna.
18:00 Jennifer Aniston hefur eignast sína stjörnu á frægðarstéttinni í Hollywood.  Meira »

Lét níu ára dóttur sína keyra

15:52 Bandarískur maður sem lét níu ára dóttur sína keyra sig um þar sem hann var undir áhrifum áfengis, hefur verið dæmdur í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi. Meira »

Ný bók í vændum frá J.K. Rowling

JK Rowling
17:23 J.K. Rowling, höfundur Harry Potter, er búin að skrifa skáldsögu fyrir fullorðna, sem hún segir að sé mjög ólík fyrri metsölubókum sínum. Útgefendur hennar sögðu frá þessu í dag, og sögðu jafnframt að innan skamms verði titill bókarinnar og útgáfudagur tilkynntur. Meira »

Valdi bleik barnaföt

Jessica Simpson á von á sér í mars.
15:29 Allt bendir til þess að Jessica Simpson eigi von á dóttur í mars.  Meira »

finnur.is