Jackson æfði af kappi

Jackson á dansæfingu stækka

Jackson á dansæfingu Reuters

Poppkóngurinn virtist í miklu fjöri og vel stemmdur síðustu vikur og jafnvel klukkustundir fyrir andlátið, en hann hafði æft af kappi fyrir komandi tónleikaröð í London sem átti að hefjast 13. júlí. Vinir og samstarfsmenn segja hann endurnærst af því að hafa svo mikið fyrir stafni.

Eftir mörg erfið ár m.a. undir ásökunum um kynferðisofbeldi gegn barni virtist Michael Jackson hafa náð sér á strik á ný. Hann hafði ráðið einkaþjálfara og æfði dans í nokkra tíma á dag. „Hann lagði hart að sér og gaf þar með fordæmi, hafði umsjón með dansinum og knúði æfingarnar áfram,“ er haft eftir umsjónarmanni æfingahúsnæðisins.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið myndskeið

Flotilla rehearses for British Queen's Jubilee
Í gær, 20:47 Mikil hátíðahöld verða um gjörvallt Bretland næstu helgi, þegar 60 ára krýningarafmæli Elísabetar II Englandsdrottningar, demantsafmælinu, verður fagnað. Meðal atriða á hátíðinni verður sigling báta af ýmsum stærðum og gerðum eftir Thames-ánni. Meira »

Gullpálminn veittur í dag

Michael Haneke ékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag fyrir mynd sína Love.
Í gær, 18:08 Kvikmynd ástralska leikstjórans Michaels Haneke, Love, fékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag. Í myndinni er sögð saga trygglynds eiginmanns í París sem annast dauðvona eiginkonu sína. Meira »

Danska höllin fékk BAFTA-verðlaun

Sidse Babette Knudsen í hlutverki sínu sem forsætisráðherrann Birgitte Nyborg.
Í gær, 19:34 Dönsku sjónvarpsþættirnir Höllin, eða Borgen eins og þeir heita á frummálinu, fengu bresku BAFTA-verðlaunin í dag sem bestu erlendu sjónvarpsþættirnir. Meira »

Evróvisjón verður í Svíþjóð að ári

Loreen vann Evróvisjón 2012.
Í gær, 14:34 Ljóst er að næsta Evróvisjónkeppni verður haldin í Svíþjóð og er þegar búið að ákveða dagsetningu; laugardaginn 18. maí. Keppnin verður sú 58. í röðinni. Sigurvegarinn, Loreen frá Svíþjóð, var hrærð yfir sigrinum. Meira »

finnur.is