Búsett á flugvelli í 7 mánuði

stækka

GONZALO FUENTES

Finnsk kona, sem er læknir að mennt, hefur verið búsett á Tegel-flugvellinum í Berlín í sjö mánuði. Konan á við geðræn vandamál að stríða og hefur fleygt vegabréfi sínu og krítarkortum.

Presti í finnska söfnuðinum í Berlín tókst fyrr í vetur að koma konunni inn á geðdeild á meðan beðið væri eftir því að hún yrði flutt til Finnlands. Finnskt hjúkrunarfólk hélt til Berlínar til að sækja konuna en dómari hafði áður leyft að hún yrði útskrifuð þar sem læknar sögðu að hún ógnaði hvorki sjálfri sér né öðrum. Presturinn, sem heimsækir konuna og gefur henni fé, hefur farið þess á leit við yfirvöld í Finnlandi og Þýskalandi að fundin verði lausn á málum hennar. Finnsk yfirvöld vilja að konan verði send heim eins og Tyrkir gerðu þegar hún bjó á flugvelli í Istanbúl um skeið. Málið snýst um hvaða þjóðríki ber að fjalla um málið. Konan hefur nú tvo hagsmunagæslumenn, finnskan og þýskan, en talar við hvorugan.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Hræddu líftóruna úr gíröffum

14.5. Tveir gíraffar hafa drepist í dýragarðinum í Lodz í Póllandi undanfarna daga og er dánarorsökin streita.  Meira »

Stakk kærasta systur sinnar

Maðurinn klessti kökusneið framan í kærustu sína.
8.5. Lögreglan í bandarísku borginni San Diego hafði í nógu að snúast nýverið þegar tilkynnt var um tvær hnífaárásir, í tveimur veislum, sama kvöldið. Og ástæðurnar voru harla óvenjulegar. Meira »

Fyrsta kattaveitingahús Vínar

Kötturinn Luca hefur það gott á kaffihúsinu
9.5. Kötturinn Luca sefur í körfu sinni meðan gengilbeina þjónar gestum á fyrsta kattaveitingahúsi Vínarborgar.   Meira »

Kínverskir nemendur beita ýmsum brögðum

Mynd úr skólastofu í Kína þar sem komið hefur verið upp búnaði til að nemendur ...
8.5. Nokkuð er um það að menntaskólanemendur í miðhluta Kína grípi til þess bragðs að fá amínósýrur í æð í þeim tilgangi að ná betri árangri í stúdentsprófum, en afar erfitt mun vera að komast inn í háskóla í landinu. Meira »

finnur.is