Þúsundir minnast Jacksons

Ungir aðdáendur Jacksons í gervi uppvakninganna í myndbandinu Thriller.
Ungir aðdáendur Jacksons í gervi uppvakninganna í myndbandinu Thriller. Reuters

Þúsundir manna komu saman á minningarathöfn um Michael Jackson í fæðingarbæ hans, Gary í Indiana í gær, föstudag. Börn klæddu sig upp eins og uppvakningarnir í myndbandinu Thriller og blökkumannaleiðtoginn Jesse Jackson tók þátt í bænastund í minningu poppgoðsins.

Margir lögðu á sig mikið erfiði til að geta verið viðstaddir athöfnina og ók einn aðdáenda Jacksons 900 km til að geta heiðrað minningu hans.

Anita Hill, fyrsti tónlistarkennari Jacksons, rifjaði upp þegar hún leiðbeindi honum um flutning lagsins „Climb Every Mountain“.

Lýsti hún honum sem yndislegum og mjög tápmiklum nemanda. 

Fólkið kom saman á The Steel Yard hafnaboltavellinum og var hápunktur kvöldsins þegar myndskeið af Jackson var sýnt á stórum skjá þar sem hann sagði borgina ávallt mundu verða í hjarta sínu.

Rudy Clay, borgarstóri Gary, þakkaði listamanninum framlag sitt, hann hefði með glæstum ferli sínum komið borginni á kortið.

Skólastjórinn í barnaskólanum sem Jackson gekk í rifjaði upp hversu áfjáður hann var í að koma fram og syngja, meðal annars í félagi með Jackson 5. Tók hann sérstaklega fram að aðgangseyrir hefði aðeins verið 10 sent, eða 14 krónur á núverandi gengi.

Jackson bjó í Gary fyrstu 11 ár ævi sinnar en fjölskyldan fluttist svo til vesturstrandarinnar þar sem fræðgarsól Jackson 5 átti eftir að rísa svo um munar.

Joe Jackson, faðir Michaels Jacksons, heldur á minningarskildi um son …
Joe Jackson, faðir Michaels Jacksons, heldur á minningarskildi um son sinn. Við hlið hans stendur Rudy Clay, borgarstóri Gary. Reuters
Blökkumannaleiðtoginn Jesse Jackson, sem er til vinstri á myndinni, tekur …
Blökkumannaleiðtoginn Jesse Jackson, sem er til vinstri á myndinni, tekur þátt í bænastund í minningu Jacksons. Reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant