Indverskur fánaböðull gómaður eftir 19 ár

Myndin tengist fréttinni ekki beint. stækka

Myndin tengist fréttinni ekki beint. DANISH ISMAIL

Indverska lögregla handtók í morgun mann sem hafði verið nítján ár á flótta en hann var árið 1990 sakfelldur fyrir að vanvirða indverksa þjóðfánann. Braut maðurinn ströng indversk fánalög um að koma fram við fánann af „göfuglyndi, hollustu og virðingu“ með því að vefja kjötstykki í hann.

Flóttamaðurinn, Ismail Mohammed, játaði á sínum tíma að hafa vanvirt fánann með fyrrnefndum hætti í kjötbúð sinni. Var hann í kjölfarið dæmdur í þriggja mánaða fangelsi í Kerala-héraði fyrir vanvirðuna en slapp úr haldi að sögn Tomin Thachankary, lögregluforingja.

Mohammed bar fyrir sig að hann vissi ekki hve ströng indversk fánalög eru en þau banna að fáninn snerti jörð eða vatn og sé notaður sem áklæði, umbúðir eða borðdúkur.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Tókst að góma flóttamörgæsina 337

Mörgæsin var á flótta í tvo mánuði.
25.5. Ársgömul mörgæs sem flúði Sædýrasafnið í Tókýó hefur loks náðst. Í mars tókst henni að henni flýja með því að klifra yfir vegg og renna sér síðan undir girðingu. Meira »

Er elst Íslendinga

Guðríður Guðbrandsdóttir á heimili sínu í Fururgerði 1.
23.5. Guðríður Guðbrandsdóttir er elst Íslendinga og heldur upp á 106 ára afmæli sitt í dag. Guðríður býr í þjónustuíbúð fyrir aldraða í Reykjavík og er vel ern. Hún fer alltaf í hádegismat og í leikfimi tvisvar í viku. Meira »

Bara tvær flugur á almenningssalerni

Frá Torgi hins himneska friðar í Peking
24.5. „Aðeins mega tvær flugur finnast inni á hverju almenningssalerni“ segir í nýútgefnum reglum yfirvalda í Peking.   Meira »

Tekist á um kynfæri Zuma

Myndin The Spear eftir suður-afríska listamanninn Brett Murray hefur vakið hörð viðbrögð en á myndinni ...
22.5. Tveir menn sáust á mynd vinna skemmdarverk málverki af forseta Suður-Afríku, Jacob Zuma, en á myndinni sést hann stilla sér upp sem Lenín með kynfærin úti. Tekist er á um myndina fyrir dómi í Suður-Afríku en flokkur forsetans er ósáttur við myndina. Meira »

finnur.is