Jafn greindir og 2 ára börn

Border collie, eða merkjakoli, með kanínu sér við hlið. stækka

Border collie, eða merkjakoli, með kanínu sér við hlið.

Venjulegur hundur skilur 165 orð og merki og hefur því sömu tungumálaleikni, ef svo má að orði komast, og tveggja ára barn. Skynsamir hundar geta skilið allt að 250 orð og merki, eða bendingar, og geta þar að auki reiknað einföld dæmi í huganum.

Tilraunirnar sem háskólinn í bresku Kólumbíu fór fyrir þykja leiða í ljós að venjulegur hundur er mun greindari en talið hefur verið en border collie, eða merkjakoli, og retriever hundar þykja klárastir en veiðihundar og terríer, ýmsir smávaxnir hundar af völskuhundakyni, óskynsamastir.

Klárustu hundarnir geta sem fyrr segir skilið allt að 250 orð og merki, eða jafn mikið og tveggja og hálfs árs gamalt barn, en um fimmtungur hunda er svo leikinn.

Stanley Coren, prófessor og sérfræðingur í greind hunda við háskólann í bresku Kólumbíu í Vancouver, fór fyrir rannsókninni en hann telur hunda með greindustu skepnum og jafn snjalla og apar og páfagaukar þegar kemur að getu til að skilja tungumál.

Nánar er fjallað um málið á vef Daily Telegraph.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Tókst að góma flóttamörgæsina 337

Mörgæsin var á flótta í tvo mánuði.
25.5. Ársgömul mörgæs sem flúði Sædýrasafnið í Tókýó hefur loks náðst. Í mars tókst henni að henni flýja með því að klifra yfir vegg og renna sér síðan undir girðingu. Meira »

Er elst Íslendinga

Guðríður Guðbrandsdóttir á heimili sínu í Fururgerði 1.
23.5. Guðríður Guðbrandsdóttir er elst Íslendinga og heldur upp á 106 ára afmæli sitt í dag. Guðríður býr í þjónustuíbúð fyrir aldraða í Reykjavík og er vel ern. Hún fer alltaf í hádegismat og í leikfimi tvisvar í viku. Meira »

Bara tvær flugur á almenningssalerni

Frá Torgi hins himneska friðar í Peking
24.5. „Aðeins mega tvær flugur finnast inni á hverju almenningssalerni“ segir í nýútgefnum reglum yfirvalda í Peking.   Meira »

Tekist á um kynfæri Zuma

Myndin The Spear eftir suður-afríska listamanninn Brett Murray hefur vakið hörð viðbrögð en á myndinni ...
22.5. Tveir menn sáust á mynd vinna skemmdarverk málverki af forseta Suður-Afríku, Jacob Zuma, en á myndinni sést hann stilla sér upp sem Lenín með kynfærin úti. Tekist er á um myndina fyrir dómi í Suður-Afríku en flokkur forsetans er ósáttur við myndina. Meira »

finnur.is