Ísland - þegar þú hefur ekki efni á Evrópu
Ef þú hefur ekki efni á að ferðast til Evrópu þá ferðu til Íslands. Þetta ritar bandarískur námsmaður á ferðavefinn Examiner en samkvæmt honum virðast allir sem hann þekkir vera á leið til Íslands eða hafa ferðast þangað nýverið. Ísland sé frábær áfangastaður fyrir Bandaríkjamenn sem vilja ferðast ódýrt. Hann bendir líka á Lettland sem svipaðan kost þar sem kreppan ræður einnig þar ríkjum.
Einn kostur Íslands sé kaldur vindur sem sé afar hressandi þessa heitu sumarmánuði.
Kemur fram í greininni að fall krónunnar þýði að allt sé svo ódýrt á Íslandi. Flug frá JFK flugvellinum í New York til Ísland kosti um 700 Bandaríkjadali og jafnvel allt niður í 500 dali. Um sé að ræða flug báðar leiðir.
Ísland er eins nálægt og þú kemst að Evrópu þessa dagana án þess að tárfella yfir því hversu verðlítill Bandaríkjadalurinn er í samanburði við evruna, segir greinahöfundur og ráðleggur Bandaríkjamönnum að skella sér í rúllukragapeysuna og þykjast vera Simone de Beauvoir þó svo að landið sé kannski rétt. Eins hafi hann heyrt að eldfjöllin og hverirnir séu ansi flott á Íslandi.









