Elskhugi Jackson stígur fram

Sæktu Flash-spilarann til að spila myndskeiðið

Karlmaður sem segist hafa verið elskhugi tónlistarmannnsins Michaels Jackson er hann lést hefur nú stigið fram á sjónarsviðið. Hann segist vera niðurbrotinn eftir lát söngvarans en þeir hafi átt sína stuttu en rómantísku ástarsögu sem skyndilega var bundinn endir á með fráfalli Jacksons.

Jason Pfeiffer, sem er starfsmaður hjá húðsjúkdómalækni söngvarans, Arnolds Klein, segist vera innantómur eftir lát ástmannsins. „Ég hef misst sálufélaga minn. Það er erfitt að lýsa þeim söknuði sem ég upplifi en það er eins og það sé ákveðið tómarúm í hjarta mínu."

Pfeiffer, 35 ára, segir að þeir hafi í fyrstu orðið vinir í gegnum ótalmörg símtöl þeirra á milli. Síðan hafi þeir átt leynilegan ástarfund í bifreið hans þegar Jackson hafi beðið um far heim til sín. 

„Ég held að okkar fyrsta „stefnumót" hafi verið í bifreið minni. Við fórum í ökuferð, spjölluðum saman og skemmtum okkur... Við urðum að vera vissir um að enginn sæi til okkar og þrátt fyrir að stefnumótið væri stutt þar sem ég varð að fara með hann heim áður en nokkur uppgötvaði þetta þá áttum við frábæra stund. Ég hélt að enginn vissi af þessu en hef síðan komist að því að einhverjir  hafa giskað á sannleikann," segir Pfeiffer.

Hann segir að þeir hafi síðan átt reglulega fundi allt til dauða söngvarans.

Útförn Jackson hefur verið frestað og að sögn föður hans, Joe Jackson, liggur ekki fyrir hvenær hún fer fram og hvar. Ólíklegt sé að hún verði í kirkjugarðinum í Los Angeles,  Forest Lawn Memorial Park, þann 28. ágúst nk. sem er afmælisdagur söngvarans líkt og áður hafði verið skipulagt.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Whitney Houston minnst á Grammy-hátíðinni myndskeið

Minntust Houston á Grammy
08:26 Söngkonunnar Whitney Houston var minnst á Grammy-verðlaunahátíðinni í gær með bænum og söng en hún lést í gær sem kunnugt er. Meira »

Adele fékk sex Grammy-verðlaun myndskeið

Whitney Houston remembered on Grammy red carpet
07:17 Breska söngkonan Adele kom, sá og sigraði á Grammy-verðlaunahátíðinni í gær þegar hún vann hvorki meira né minna en sex verðlaun. Þar á meðal fékk hún Grammy-verðlaunin bæði fyrir plötu ársins. Meira »

Dádýr og hrútur ganga í það heilaga

Hrúturinn Changmao og dádýrið Chunzi.
08:20 Dýragarður í suðvesturhluta Kína hyggst blása til brúðkaups á morgun, Valentínusardag. Brúðhjónin eru hrúturinn Chunzi og dádýrskýrin Changmao, en óhefðbundið samband þeirra hefur vakið nokkra athygli gesta dýragarðsins. Meira »

Steinunn talar um kjóla og korselett

Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður er höfundur sýningarinnar.
05:30 Á morgun, þriðjudag kl. 12, mun Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður halda fyrirlestur í Þjóðminjasafni Íslands.  Meira »

finnur.is