Styðja listina þrátt fyrir tap

Þrátt fyrir að þýska ofurfyrirtækið Siemens reikni með 28 prósenta tapi í rekstri á þriðja fjórðungi ársins, hafa stjórnendur þess lýst því yfir að þeir muni ekki draga úr styrkjum til menningar og lista.

Stærstu verkefni Siemens á því sviði eru Wagner-hátíðin í Bayreuth í Þýskalandi og Tónlistarhátíðin í Salzburg í Austurríki.

Upphæðin sem Siemens áætlar að eyða í menningartengda starfsemi á árinu nemur andvirði 9,3 milljarðaíslenskra króna.

Í fyrra sagði fyrirtækið um 17 þúsund manns og vinnuhlutfall 15 þúsund starfsmanna var skert.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

„Minn stærsti djöfull er ég sjálf“

Whitney Houston árið 1998.
Í gær, 23:30 Lögreglan hefur í allan dag leitað skýringa á dauða poppsöngkonunnar Whitney Houston. Á meðan undirbýr tónlistarheimurinn árshátíð sína, sjálfa Grammy-verðlaunahátíðina. Minn stærsti djöfull er ég sjálf, sagði Houston í viðtali árið 2002. Meira »

Dóttir Houston á sjúkrahús

Whitney Houston ásamt dóttur sinni Bobbi Kristina Brown.
Í gær, 21:02 Dóttir söngkonunnar Whitney Houston var flutt á sjúkrahús í dag. Ekki er ljóst hvers vegna Bobbi Kristina Brown þurfti á læknisaðstoð að halda. Meira »

The Artist fékk sjö verðlaun

Leikararnir Jean Dujardin og Berenice Bejo í hlutverkum sínum í kvikmyndinni The Artist.
Í gær, 21:43 Þögla kvikmyndin The Artist fékk sjö verðlaun á bresku kvikmynda- og sjónvarpshátíðinni, BAFTA í kvöld. Myndin var meðal annars valin besta kvikmyndin. Meryl Streep var valin besta leikkona í aðalhlutverki. Meira »

Fjölskylda Houston miður sín

Whitney Houston árið 1998.
Í gær, 20:35 Fjölskylda söngkonunnar Whitney Houston segist miður sín yfir þeim harmleik sem fráfall hennar sé. Houston fannst látin í baðkari á hótelherbergi í gær. Hún var 48 ára. Meira »

finnur.is