Veröld/Fólk
| mbl
| 28.8.2009
| 10:34
Lykilvitni enn ekki yfirheyrð
Greint hefur verið frá því að einungis þrír rannsóknarlögreglumenn vinni að rannsókn á láti poppstjörnunnar Michael Jackson í júní á þessu ári. Öll lykilvitni í málinu hafa ekki enn verið yfirheyrð.
Carl Douglas, lögfræðingur Michael Amir starfsmannastjóra hans og Alberto Alvarez yfirmanns öryggismála hans, segir að tvisvar hafi staðið til að þeir hittu rannsóknarlögreglumennina en að í bæði skiptin hafi því verið aflýst.
„Fyrri fundinum var aflýst en í seinna skiptir þurfti ég að hringja til þeirra í leit að upplýsingum um það hvers vegna þeir mættu ekki,” segir hann.Það var Alvarez sem hringdi á neyðarlínu að beiðni einkalæknis Jacksons er hann lést en efasemdir hafa verið settar fram um framburð læknisins sem kom að Jackson.
Læknirinn Conrad Murray hefur viðurkennt að hafa gefið söngvaranum deyfilyfið Propofol áður en hann lést en hann er auk þess sagður hafa tekið þrjú önnur lyfseðilsskyld lyf.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
- Lokadagur leirmunasýningar
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
- Þórunn Erna bæjarlistamaður Garðabæjar
- Rauk út í miðri áheyrnarprufu
- UN Women styrktartónleikar á Gauknum
- „Erum ekkert að fara á taugum“
- Vona að Spánn sigri ekki
- Frost ekki bara á Fróni?
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Aldrei boðið á stefnumót
- Orðljótur í Cannes
- Hróaðu þig niður!










