Einstefna í báðar áttir

Miklar umferðartafir voru í tveimur úthverfum Parísar í dag eftir að borgarstjórar hvors hverfis um sig lýsti sömu götuna sem einstefnugötu - í sitt hvora áttina.

Patrick Balkany, borgarstjóri í Levallois-Perret, gerði veginn, D909, að einstefnu til þess að létta á umferð gegnum hverfið.

Hins vegar sagði Gilles Catoire, borgarstjóri í Clichy-la-Garenne, að þetta yki umferðartafir í hans hverfi.

Hann gerði því þann hluta vegarins sem liggur í gegnum Clichy að einstefnugötu líka, nema í hina áttina.

Þegar svo gagnstæð umferðarskilti voru komin upp gerðist hið óhjákvæmlega og umferðin stöðvaðist algerlega. Varð lögreglan að koma til aðstoðar og beina umferðinni frá svæðinu.

,,Það sem Clichy gerði er ekki langtímalausn heldur svar við einhliða ákvörðun tekinni af stjórn Levallois," sagði varaborgarstjóri Clichy, Alain Fournier, í samtali við AFP.

Balkany sagði hins vegar: Borgarstjórinn í Clichy hefur tekið afstöðu sem er ósanngjörn og kemur niður á hans eigin kjósendum.

Þúsundir ökumanna fara milli úthverfanna tveggja hvern einasta dag á leið sinni til og frá vinnu í höfuðborginni París.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Skaut í sundur fartölvu dóttur sinnar

Tommy Jordan í myndbandinu.
Í gær, 21:04 Myndband af bandarískum karlmanni sem refsar unglingsdóttur sinni með því að skjóta af skammbyssu á fartölvu hennar hefur vakið hörð viðbrögð á netinu og yfir tvær milljónir manna skoðað það á Youtube. Refsingin var tilkomin vegna færslu stúlkunnar á Facebook, þar sem hún kvartar yfir foreldrum sínum. Meira »

Biðja fyrir heilbrigðum býflugum

Prestur í rétttrúnaðarkirkjunni biður til heilags Haralambos um betri tíð.
í gær Meðlimir í rétttrúnaðarkirkjunni í Búlgaríu tilbiðja í dag dýrlinginn Haralambos, verndara býflugna. Biður fólk dýrlinginn að vernda heimili sín og aflétta frosthörkunum í landinu. Meira »

Munir úr Á hverfanda hveli brunnu

Vivien Leigh og Clark Gable í hlutverkum sínum í Á hverfanda hveli.
í gær Talið er að munir úr kvikmyndinni Á hverfanda hveli, Gone with the Wind, hafi orðið eldi að bráð í fyrrinótt. Munirnir voru geymdir í safninu Vegurinn til Töru í Atlanta í Bandaríkjunum. Meira »

Einfættur fíkniefnasali reyndi að flýja

Maðurinn var með 120 grömm af kókaíni innvortis.
í fyrradag Bandarískur fíkniefnasali sem lögregla í Jacksonwille, í Flórídaríki, hafði afskipti af á dögunum reyndi að flýja undan laganna vörðum. Það væri ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að maðurinn sem er á þrítugsaldri er einfættur. Meira »

finnur.is