Jackson jarðsunginn í nótt
Staðfest hefur verið að poppsöngvarinn Michael Jackson verði jarðsunginn í nótt að viðstöddum ættingjum hans og nánustu vinum, rúmum tveimur mánuðum eftir að hann dó.
Athöfnin fer fram í grafhýsi í Forest Lawn-kirkjugarðinum í Hollywood klukkan sjö e.h. að staðartíma, kl. tvö í nótt að íslenskum, og á að standa í 45 mínútur.
Fjölmiðlum og aðdáendum Jacksons verður ekki veittur aðgangur að athöfninni en talið er að söngkonan Diana Ross verði á meðal viðstaddra og að Aretha Franklin syngi.
Gert hafði verið ráð fyrir því að útförin færi fram á afmælisdegi Jacksons, 29. ágúst, en ákveðið var að fresta henni til að meiri tími gæfist til að undirbúa hana. Margir frægir leikarar hafa verið bornir til grafar í Forest Lawn-kirkjugarðinum, þeirra á meðal Humphrey Bogart, Errol Flynn og Clark Gable.
- „Minn stærsti djöfull er ég sjálf“
- The Artist fékk sjö verðlaun
- Dóttir Houston á sjúkrahús
- Fjölskylda Houston miður sín
- Reisir styttu af forsetafrúnni
- Stjörnum prýdd verðlaunahátíð
- „Ótrúlega íslenskur og svalur“
- Styttuþjófar herja á London
-
Fólk víða að minnist Houston
- Sektir fyrir að kasta svifdiskum
-
Aðdáendur Houston bíða frétta










