Janet forðast fréttir

Janet Jackson með börnum Michael Jackson við opinbera minningarathöfn um hann. stækka

Janet Jackson með börnum Michael Jackson við opinbera minningarathöfn um hann. Reuters

Janet Jackson, systir söngvarans Michael Jackson, hefur nú í fyrsta sinn tjáð sig opinberlega um skyndilegt fráfall hans í júní. Í viðtali við tímaritið Harper's Bazaar segist hún ekki hafa horft á fréttir frá fráfalli hans.

Janet segir að stöðugur fréttaflutningur af málinu myndi gera hana brjálaða og bætir því við að það séu ekki allir gerðir úr steini.

Þá segist hún virkilega stolt af ellefu ára bróðurdóttur sinni sem minntist föður sína við opinbera minningarathöfn um hann. Einnig fer hún lofsamlegum orðum um móður sína Katherine Jackson sem nú fer með forræði þriggja barna Michael.

„Mig hefur alltaf dreymt um að hafa styrk móður minnar en ég vissi ekki hvort hann væri raunverulega til staðar," segir hún. Þá segist hún hafa leitað í mat í sorg sinni.  „Ég borða stundum af tilfinningalegum ástæðum og ég hef verið að gera það upp á síðkastið."

Hún segir einnig frá því að hún hafi síðast hitt bróður sinn um sex vikum fyrir andlát hans. „Við skemmtum okkur svo vel þann dag," segir hún. „Við hringdum aftur og aftur hvort í annað til að tala um hvað það hefði verið frábært."

 Janet var við kvikmyndatökur í Atlanta er henni var tilkynnt um lát bróður síns í síma og hélt hún þá rakleitt til Los Angeles þar sem hún hefur að mestu dvalið síðan.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið myndskeið

Flotilla rehearses for British Queen's Jubilee
Í gær, 20:47 Mikil hátíðahöld verða um gjörvallt Bretland næstu helgi, þegar 60 ára krýningarafmæli Elísabetar II Englandsdrottningar, demantsafmælinu, verður fagnað. Meðal atriða á hátíðinni verður sigling báta af ýmsum stærðum og gerðum eftir Thames-ánni. Meira »

Gullpálminn veittur í dag

Michael Haneke ékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag fyrir mynd sína Love.
Í gær, 18:08 Kvikmynd ástralska leikstjórans Michaels Haneke, Love, fékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag. Í myndinni er sögð saga trygglynds eiginmanns í París sem annast dauðvona eiginkonu sína. Meira »

Danska höllin fékk BAFTA-verðlaun

Sidse Babette Knudsen í hlutverki sínu sem forsætisráðherrann Birgitte Nyborg.
Í gær, 19:34 Dönsku sjónvarpsþættirnir Höllin, eða Borgen eins og þeir heita á frummálinu, fengu bresku BAFTA-verðlaunin í dag sem bestu erlendu sjónvarpsþættirnir. Meira »

Evróvisjón verður í Svíþjóð að ári

Loreen vann Evróvisjón 2012.
Í gær, 14:34 Ljóst er að næsta Evróvisjónkeppni verður haldin í Svíþjóð og er þegar búið að ákveða dagsetningu; laugardaginn 18. maí. Keppnin verður sú 58. í röðinni. Sigurvegarinn, Loreen frá Svíþjóð, var hrærð yfir sigrinum. Meira »

finnur.is