Þröngar nærbuxur takk!

Jennifer Aniston. stækka

Jennifer Aniston. MARIO ANZUONI

Bandaríska leikkonan Jennifer Aniston segist vilja að karlmenn klæðist þröngum, hvítum nærbuxum. Aniston, sem er sögð eiga í ástarsambandi við leikarann Gerard Butler, segist alls ekki hrifin af því þegar karlmenn gangi um í víðum nærbuxum.

„Ég vil sjá karlmenn í þröngum og hvítum nærbuxum. Ég er ekki hrifin af „boxers“, þær eru ekki flottar,“ útskýrir hin 40 ára gamla leikkona, sem er hvað þekktust fyrir samband sitt við Brad Pitt.

Aniston ku hafa mikinn áhuga á fatnaði, og íhugar nú að koma á fót sinni eigin fatalínu. „Ég væri til dæmis mjög til í að hanna mína eigin baðfatalínu. Mér finnst nefnilega alltaf svo erfitt að finna almennileg baðföt,“ segir hún.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Langar að leikstýra Brad Pitt

Angelina Jolie.
10:55 Angelina Jolie gælir við hugmyndina að vinna nánar með barnsföður sínum.  Meira »

Hvað á litla prinsessan að heita?

Daníel Svíaprins sýnir hér stærð nýfæddrar dóttur sinnar á Karólínska sjúkrahúsinu í morgun.
08:50 Svíar eru þegar farnir að velta fyrir sér nafni á nýfæddu prinsessuna, en í nótt fæddist Viktoríu krónprinsessu og Daníel eiginmanni hennar dóttir. Sænski veðbankinn Paf telur mestar líkur á að hún muni fá nafnið Alicia. Meira »

Óttast að Rihanna og Brown taki aftur saman

Rihanna.
09:46 Chris Brown og Rihanna eru ískyggilega nálægt því að taka aftur saman, að sögn slúðursíðunnar tmz.com en vinir söngkonunnar reyni hvað þeir geti að halda þeim hvort frá öðru. Meira »

Svíaprinsessa er fædd

Hjónin Viktoría og Daniel.
06:23 Viktoría, krónprinsessa Svía, eignaðist dóttur um klukkan hálf fimm í morgun. Litla stúlkan, sem síðar meir mun sitja á valdastóli í Svíþjóð, fæddist á Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi og var 51 sentímetrar og tæp 3,3 kíló. Faðirinn, Daníel Westling, segir móður og barni heilsast vel. Meira »

finnur.is