Hljóp 43 maraþonhlaup á 51 degi

Eddie Izzard kemur í mark á Trafalgartorgi í Lundúnum í …
Eddie Izzard kemur í mark á Trafalgartorgi í Lundúnum í gær. Reuters

Breski leikarinn og grínistinn Eddie Izzard lauk í gær að hlaupa umhverfis Bretland. Alls hljóp Izzard 1770 km á 51 degi sem jafngildir nærri 43 maraþonhlaupum. Með þessu móti safnaði Izzard 200 þúsund pundum til góðgerðarmála.

„Mér líður mjög vel," sagði Izzard þegar hann kom á fund Gordons Browns, forsætisráðherra í dag í Downingstræti í Lundúnum. „Mér er illt í fótunum, öllum líkamanum. Ég er dauðþreyttur. Táneglurnar eru horfnar og er með blöðrur og annað þessháttar en það er einskonar vísindaskáldsaga að mér hafi tekist að ljúka hlaupinu." 

Izzard, sem er 47 ára, er ekki þekktur fyrir frammistöðu í íþróttum en hann er vinsæll gamanleikari og hefur einnig leikið í Hollywoodmyndum. Hann æfði sig í fimm vikur áður en hann lagði af stað. Venjulega er hlaupurum ráðlagt að taka sér að minnsta kosti 3 vikna hvíld milli maraþonhlaupa.  

Með í förinni um Bretland var ísbíll og íþróttasálfræðingur. 

Izzard hefur lýst því yfir, að hann hafi áhuga á að hella sér í bresk stjórnmál, þó ekki næsta áratuginn.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler