Raggi Bjarna býður öllum í afmæli

Ragnar Bjarnason verður 75 ára næstkomandi þriðjudag og í tilefni þess býður hann landsmönnum upp á afmælistertu og kaffi í anddyri nýju Laugardagshallarinnar klukkan 16.

Ragnar ætlar að syngja nokkur lög fyrir afmælisgesti og von er á nokkrum góðum gestum sem ætla að taka lagið með afmælisbarninu. Þorgeir Ástvaldsson sér um veislustjórn. Sama dag kemur út platan Komdu í kvöld sem inniheldur 69 bestu lög Ragnars á þremur geislaplötum.

Afmælistónleikar Ragnars fara fram í Laugardalshöll laugardaginn 26.september og er uppselt á seinni tónleikana en ennþá er hægt að fá miða á tónleikana kl 16 sama dag. Umgjörð tónleikanna verður hin glæsilegasta og fram koma landsliðsmenn í söng og hljóðfæraleik. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant