Arnaldur verðlaunaður í Bandaríkjunum
Arnaldur Indriðason
The Barry Award eru veitt af tímaritunum Deadly Pleasures og Mystery News fyrir bestu glæpasöguna. Verðlaunin, sem hafa verið veitt árlega frá 1997, hafa hlotið höfundar á borð við Laura Lippmann, George Pelecanos, Lee Child og Michael Connelly. Kleifarvatn var einnig tilnefnt til Macavity verðlaunanna sem tímaritið Mystery Reader’s International stendur fyrir.
Í fréttatilkynningu kemur fram að bækur Arnaldar hafa selst í ríflega fimm milljónum eintaka heima og erlendis og setið ofarlega á metsölulistum í Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Hollandi, Belgíu, Þýskalandi, Spáni og Frakklandi auk Íslands.
Nýjasta bók Arnaldar Indriðasonar, Svörtuloft, kemur út 1. nóvember nk.









