Ótrúlegar myndir af háskaför smábarns

Sæktu Flash-spilarann til að spila myndskeiðið

Eftirlitsmyndavél á lestarstöð í Melbourne í Ástralíu myndaði í gær atburð sem hefði getað endað hræðilega. Þar sést móðir gleyma sér í stundarkorn með þeim afleiðingum að barnavagn rennur fram af brautarpalli og niður á brautarteinana. Á sama augnabliki verður vagninn fyrir lest.

Þegar móðirin áttaði sig reyndi hún að grípa í vagninn og öskraði, en það var um seinan. Lestin var hins vegar að hægja á sér og ýtti vagninum um 40 metra. Til allrar hamingju var barnið ekki laust í vagninum og fékk aðeins kúlu á höfuðið.

Það var flutt á sjúkrahús og að sögn lækna er líðan þess stöðug. Móðirin fékk hins vegar áfall og það mun væntanlega taka nokkurn tíma fyrir hana að jafna sig. 

Athygli vekur að þetta gerist degi eftir að lestarfyrirtæki hóf herferð til að hvetja foreldra og aðra forráðamenn til að gæta barna vel í námunda við lestir.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Aðdáendur Houston bíða frétta myndskeið

Aðdáendur Whitney
14:12 Aðdáendur bandarísku söngkonunnar Whitney Houston hafa safnast saman fyrir utan hótelið í Los Angeles þar sem söngkonan fannst látin í gær. Bíða þeir frekari fregna af sviplegu fráfalli söngkonunnar. Meira »

Lík Houston flutt af hótelinu myndskeið

Farið með líkið
11:18 Mikill fjöldi fjölmiðla sat um Beverly Hills-hótelið þegar lík bandarísku söngkonunnar Whitney Houston var flutt þaðan rétt eftir miðnætti að staðartíma. Enn hefur ekki verið skorið úr um dánarorsökina en fregnir herma að lyfseðilsskyld lyf hafi fundist á herbergi söngkonunnar. Meira »

Drukknaði Houston í baðkarinu?

Whitney Houston á Grammy-hátíðinni árið 2000.
11:21 Söngkonan Whitney Houston gæti hafa drukknað í baðkarinu á hótelherberginu þar sem hún fannst, samkvæmt heimildum fjölmiðla vestra. Meira »

„Óbærilegt álag“

03:28 Andlát bandarísku söngkonunnar Whitney Houston hafði áhrif á alla heimsbyggðina. Meðal þeirra sem tjáðu sig um það var Simon Cowell við CNN-fréttastofuna. Hann sagði álagið óbærilegt á stjörnur sem Houston, og að hún hefði kynnst röngum mönnum með þeim afleiðingum sem fylgdu. Meira »

finnur.is