„Það að ég hafi fengið neitun í 19 skipti á þeim 20 árum sem ég hef sótt um starfslaun listamanna segir sína sögu.
Á tyllidögum talar sama röddin um að það verði að örva unglinga til að lesa. En það má alls ekki styðja við bakið á þeim höfundi sem nær einna best til unglinga. Hugsanlega eru unglingabækur ekki nógu fínar bókmenntir. En mér leyfist alls ekki að tala um þetta því þá mála ég mig enn meira út í horn í þessum bókmenntaheimi.“
Þetta segir rithöfundurinn Þorgrímur Þráinsson meðal annars í viðtali í Morgunblaðinu í dag.