Sakar Bon Jovi um lagastuld - krefst 400 milljarða dala í bætur

Jon Bon Jovi kom fram með hljómsveit sinni í morgunþætti NBC í New York í ... stækka

Jon Bon Jovi kom fram með hljómsveit sinni í morgunþætti NBC í New York í morgun. AP

Aðdáandi bandaríska hafnarboltaliðsins Boston Red Sox hefur áfrýjað máli sem hann höfðaði á hendur Bon Jovi, Time Warner og bandarísku hafnaboltadeildinni (MLB). Málinu var vísað frá í fyrra, en maðurinn fór fram á 400 milljarða dala í bætur vegna höfundarréttarbrots.

Samuel Bartley Steele höfðaði málið í fyrra. Hann heldur því fram að lagið „I Love This Town“, sem hljómsveitin Bon Jovi gaf út árið 2007, sé alveg eins og lag sem hann samdi um Red Sox.

Steele segir hins vegar að sitt lag, sem heitir „(Man I Really) Love This Team“, hafi verið gefið út árið 2004. Þetta kemur fram á fréttavef breska ríkisútvarpsins.

Dómari vísaði málinu frá eftir að tónlistarfræðingur, sem kom fram á vegum Steele, komst að þeirri niðurstöðu að lögin væru ekkert sérstaklega lík.

Steele heldur því fram að hann hafi gefið leikmönnum Red Sox upptökur af laginu, sem og yfirmönnum í stjórn félagsins. Hann hafi einnig sent upptökur af laginu til stjórnar hafnaboltadeildarinnar. Þeir hefðu mátt nota lagið til að auglýsa íþróttina. Þá segir Steele að hann og félagar sínir í hljómsveitinni Bart Steele Band hafi komið fram og leikið lagið í sjónvarpi.

Bon Jovi gaf út lagið árið 2007 þegar úrslitakeppnin í bandaríska hafnaboltanum stóð sem hæst. Forsvarsmenn deildarinnar ákváðu síðan að nota lagið til að auglýsa keppnina á TBS-kapalstöðinni, sem er í eigu Time Warner.

Steele segir að Jon Bon Jovi hafi annað hvort heyrt lagið þegar hann tók þátt í kosningabaráttu forsetaframbjóðandans John Kerry í Boston árið 2004, eða þegar yfirmenn í stjórn félagsins létu hann hafa eintak af laginu.

Dómarinn komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að engin skynsamur kviðdómur gæti komist að þeirri niðurstöðu að lögin væru lík. Þrátt fyrir þessa niðurstöðu hefur Steele áfrýjað málinu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið myndskeið

Flotilla rehearses for British Queen's Jubilee
Í gær, 20:47 Mikil hátíðahöld verða um gjörvallt Bretland næstu helgi, þegar 60 ára krýningarafmæli Elísabetar II Englandsdrottningar, demantsafmælinu, verður fagnað. Meðal atriða á hátíðinni verður sigling báta af ýmsum stærðum og gerðum eftir Thames-ánni. Meira »

Gullpálminn veittur í dag

Michael Haneke ékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag fyrir mynd sína Love.
Í gær, 18:08 Kvikmynd ástralska leikstjórans Michaels Haneke, Love, fékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag. Í myndinni er sögð saga trygglynds eiginmanns í París sem annast dauðvona eiginkonu sína. Meira »

Danska höllin fékk BAFTA-verðlaun

Sidse Babette Knudsen í hlutverki sínu sem forsætisráðherrann Birgitte Nyborg.
Í gær, 19:34 Dönsku sjónvarpsþættirnir Höllin, eða Borgen eins og þeir heita á frummálinu, fengu bresku BAFTA-verðlaunin í dag sem bestu erlendu sjónvarpsþættirnir. Meira »

Evróvisjón verður í Svíþjóð að ári

Loreen vann Evróvisjón 2012.
Í gær, 14:34 Ljóst er að næsta Evróvisjónkeppni verður haldin í Svíþjóð og er þegar búið að ákveða dagsetningu; laugardaginn 18. maí. Keppnin verður sú 58. í röðinni. Sigurvegarinn, Loreen frá Svíþjóð, var hrærð yfir sigrinum. Meira »

finnur.is