Johnny Depp vinur í raun

Johnny Depp stækka

Johnny Depp Reuters

Johnny Depp hefur heitið Nicolas Cage því að  hann muni bjarga honum frá gjaldþroti. Depp mun hafa blöskrað þegar hann heyrði að Cage gæti hugsanlega orðið gjaldþrota í kjölfar þess að hann var rukkaður um ógreidda skatta sem nema um 6 milljónum Bandaríkjadala. Cage hyggst fara í mál við fjármálaráðgjafa sinn með þeim rökum að sá síðarnefndi hafi ekki staðið sig í stykkinu.

Hjartaknúsarinn Johnny Depp mun vera Cage ævarandi þakklátur fyrir að hjálpað sér á framabrautinni þegar Depp var að stíga fyrstu skref sín í Hollywood.
 
„Johnny hringdi í Nicolas og sagði honum að hann skyldi ekki hafa neinar áhyggjur,“ því hann myndi greiða úr málum fyrir hann," er haft eftir vini leikaranna í breska dagblaðinu Daily Express.

„Johnny þakkar Nicolas frægð sína og langar til þess að endurgjalda það með einhverjum hætti - þ.e. ef Nicolas fellst á það og vill taka við þeirri aðstoð. Johnny hefur aldrei gleymt hvað Nic gerði fyrir hann,“ segir vinurinn.

Þegar Cage og Depp kynntust fyrir rúmum tveimur áratugum var Depp fátækur tónlistarmaður sem var að bisast við að lifa af tónlistinni. Cage kom Depp í samband við umboðsmann sinn sem tókst að landa hlutverki fyrir Depp í myndinni A Nightmare On Elm Street sem frumsýnd var 1984. Þar með tókst ferill Depps á flug.


Nicolas Cage

Nicolas Cage Reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Fjölskylda Houston miður sín

Whitney Houston árið 1998.
20:35 Fjölskylda söngkonunnar Whitney Houston segist miður sín yfir þeim harmleik sem fráfall hennar sé. Houston fannst látin í baðkari á hótelherbergi í gær. Hún var 48 ára. Meira »

Stjörnum prýdd verðlaunahátíð

George Clooney kemur að konunglegu óperunni í London þar sem BAFTA verðlaunin verða veitt í ...
19:40 Bresku kvikmynda- og sjónvarpsverðlaunin, BAFTA, verða veitt í kvöld. Rauði dregillinn var að venju stjörnum prýddur en fyrirfram er talið að myndirnar The Artist og Tinker Tailor Soldier Spy eigi eftir að verða mest áberandi í kvöld. Meira »

Reisir styttu af forsetafrúnni

Carla Bruni-Sarkozy.
19:59 Frakkar eru ekki sérstaklega spenntir fyrir því að tveggja metra há stytta verði reist af forsetafrúnni, Cörlu Bruni. Bruni féllst á að sitja fyrir hjá myndhöggvaranum en segist ekki hafa gert sér grein fyrir að nafn hennar yrði tengt styttunni. Meira »

„Ótrúlega íslenskur og svalur“

Peter Máté við flygilinn í Hofi.
19:16 Nýtt tónverk eftir Jón Ásgeirsson var frumflutt á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands í dag. Píanóleikarinn Peter Máté flutti verkið ásamt sinfóníunni en Jón hefur lengi fylgst með ferli Peters og samdi verkið sérstaklega fyrir hann. Meira »

finnur.is