Veröld/Fólk
| mbl
| 15.11.2009
| 20:57
| Uppfært
16.11.2009
10:33
Heimsendirinn heillar
Sæktu
Flash-spilarann til að spila myndskeiðið
Heimsendamyndin 2012 var vinsælsta myndin í kvikmyndahúsum vestanhafs um helgina en hún þénaði 65 milljónir dala. Hún hefur þénað 225 milljónir dala á heimsvísu.
John Cusack, Danny Glover, Thandie Newton, Chiwetel Ejiofor og Woody Harrelson fara með aðhlutverkin í myndinni, sem er í leikstjórn Roland Emmerich. Hann er fyrir löngu orðin sérfræðingur í gerð slíkra mynda, en hann hefur m.a. gert Independence Day og The Day After Tomorrow.
A Christmas Carol, með Jim Carrey í aðalhlutverki, féll niður í annað sætið, en hún þénaði 22,3 milljónir dala.
- 2012, 65 milljónir dala.
- Disney's A Christmas Carol, 22,3 milljónir dala.
- The Men Who Stare at Goats, 6,2 milljónir dala.
- Precious: Based on the Novel `Push' by Sapphire, 6,1 milljón dala.
- Michael Jackson's This Is It, 5,1 milljón dala.
- The Fourth Kind, 4,7 milljónir dala.
- Couples Retreat, 4,3 milljónir dala.
- Paranormal Activity, 4,2 milljónir dala.
- Law Abiding Citizen, 3,9 milljónir dala.
- The Box, 3,2 milljónir dala.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









