Sigur Rós spilar undir hjá Clive Owen

Jón Þór Birgisson strýkur gítarstrengi sína á sviði. stækka

Jón Þór Birgisson strýkur gítarstrengi sína á sviði. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Tónlist Sigur Rósar mun prýða bresku bíómyndina „The Boys Are Back", fjölskyldudrama sem skartar hjartaknúsaranum Clive Owen í aðalhlutverki. Sagt er frá þessu á tónlistarvefnum Clashmusic.com. Segir þar að meðlimir hljómsveitarinnar hafi veitt leyfi fyrir notkun á tónlist þeirra í myndinni, eftir að þeir höfðu sjálfir horft á hana.

Sjö lög sveitarinnar verða notuð í myndinni, auk eins lags úr hliðarverkefni Jóns Þórs Birgissonar, Riceboy sleeps. Á Clashmusic.com er einnig minnt á að kvikmyndin Vanilla Sky hafi vakið athygli margra á Sigur Rós, eftir að tónlist sveitarinnar var notuð í þeirri mynd.

„Upphaflega notaði ég lögin þeirra til bráðabirgða, en það virkaði svo óaðfinnanlega að ég ákvað að komast í beint samband við hljómsveitina til að sjá hvort við fengjum leyfi til að nota tónlistina. Ég var varaður við því fyrirfram að þeir væru mjög vandfýsnir á það hvað tónlistin þeirra væri notuð í, en ég fór til Íslands til að sýna þeim myndina og þeir einfaldlega elskuðu hana," er haft eftir Scott Hicks, leikstjóra myndarinnar.

Hicks segir að Georg Hólm, bassaleikari Sigur Rósar, hafi sagt að til væri íslenskt orð sem hann kynni ekki að þýða yfir á ensku, sem lýsti nákvæmlega upplifuninni við að sjá þessa mynd. Hicks segist hafa beðið hann um að reyna að útskýra það en þá hafi Georg sagt: „Orðið þýðir að manni líði betur með að vera lifandi, eftir að hafa séð þessa mynd." Hicks segist hafa verið mjög hrærður vegna þessara orða.

The Boys Are Back verður frumsýnd á næsta ári.

Clive Owen.

Clive Owen. Reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Tólf ára bjargaði ættaróðalinu

21:37 Tólf ára piltur frá Wisconsin í Bandaríkjunum er orðinn hetja innan fjölskyldu sinnar, ef ekki víðar, eftir að hann bjargaði ömmu sinni frá því að vera borin út úr húsi sínu, sem hafði verið í eigu fjölskyldunnar í þrjá ættliði. Meira »

Ljósmyndagreining í Þjóðminjasafni

Fólk kemur með marga forvitnilega gripi til starfsmanna Þjóðminjasafnsins.
05:30 Ljósmyndagersemar leynast víða og í dag milli kl. 14 og 16 býðst gestum að koma í Þjóðminjasafn Íslands með gamlar ljósmyndir í greiningu. Meira »

Lagerfeld biðst afsökunar

Karl Lagerfeld er umdeildur maður.
11:05 Þýski tískuhönnuðurinn Karl Lagerfeld hefur beðið afsökunar á ummælum sínum um söngkonuna Adele, en hann sagði hann vera of feita. „Ég vil segja við Adele að ég er stærsti aðdáandi hennar,“ sagði Lagerfeld, sem mun iðrast sáran. Meira »

Matti sjokk og Messuguttarnir á Rósenberg

05:30 Hljómsveitin Matti sjokk og Messuguttarnir verður með tónleika á Café Rósenberg kl. 22 í kvöld í tilefni af útkomu plötunnar Ein sveitastemning. Meira »

finnur.is