Hamstrar vinsælasta jólagjöfin

Sæktu Flash-spilarann til að spila myndskeiðið

Vinsælasta leikfangið vestanhafs fyrir þessi jólin er leikfangahamstur sem kallast hampster. Hamstrarnir gefa frá sér fjörutíu mismunandi hljóð auk þess sem þeir þeysast um. Um fjóra hamstra er að ræða, Pipsqueak, Squiggles, Chunk, and NumNums.

Leikföngin eru raunar svo vinsæl að verð á þeim hefur hækkað umtalsvert að undanförnu. Markaðsverðið er tíu dollarar en á uppboðssíðunni E-bay seljast þeir á tuttugu dollara og yfir. Og í tveimur verslunum Toys R Us í Indíanafylki í Bandaríkjunum þurfti að kalla til lögreglu þar sem slagsmál brutust út á meðal viðskiptavina sem reyndu að tryggja sér hampstra.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Styttuþjófar herja á London

Listaverki Barböru Hepworth var rænt úr Dulwich-garðinum og það selt í brotajárn.
Í gær, 18:05 Þjófagengi fara nú ránshendi um London og stela styttum úr málmi, bræða þær og selja í brotajárn. Verðhækkun á kopar, bronsi og öðrum málmum hvetur þjófana til ódæðisins. Meira »

Tólf ára bjargaði ættaróðalinu

í fyrradag Tólf ára piltur frá Wisconsin í Bandaríkjunum er orðinn hetja innan fjölskyldu sinnar, ef ekki víðar, eftir að hann bjargaði ömmu sinni frá því að vera borin út úr húsi sínu, sem hafði verið í eigu fjölskyldunnar í þrjá ættliði. Meira »

Sektir fyrir að kasta svifdiskum

Hættulegur leikur? Maður leikur sér með svifdisk á ströndinn Venice Beach í Kaliforníu.
Í gær, 15:18 Sólardýrkendur geta nú átt á hættu að verða sektaðir fyrir að henda boltum og svifdiskum sín á milli á ströndum Los Angeles-sýslu í Kaliforníu. Sektin nemur 12 þúsund krónum. Meira »

Skaut í sundur fartölvu dóttur sinnar

Tommy Jordan í myndbandinu.
10.2. Myndband af bandarískum karlmanni sem refsar unglingsdóttur sinni með því að skjóta af skammbyssu á fartölvu hennar hefur vakið hörð viðbrögð á netinu og yfir tvær milljónir manna skoðað það á Youtube. Refsingin var tilkomin vegna færslu stúlkunnar á Facebook, þar sem hún kvartar yfir foreldrum sínum. Meira »

finnur.is