Sjóðdrukknir gagnrýnendur?

Salur Royal Opera House í London. stækka

Salur Royal Opera House í London.

Leikhúsgagnrýnendur í Bretlandi hafa oft fengið á baukinn, stjórnandi breska Þjóðleikhússins,  Nicholas Hytner, kallaði þá einu sinni ,,dauða, hvíta karla". En nú eru þeir sakaðir um að hafa dæmt leikrit þótt þeir hafi  í reynd verið sjóðdrukknir eftir fjögurra klukkustunda veisluhöld, að sögn Guardian.

Leikskáldið Timberlake Wertenbaker fullyrti í dag að gagnrýendru sem mættu á frumsýningu verks hennar, The Line, í Arcola-leikhúsinu í London á mánudag hafi verið svo ölvaðir eftir afar vel útilátinn miðdegisverð í tilefni af verðlaunaveitingu að þeir hafi verið alls ófærir um að sinna starfi sínu.  Dómarnir voru misjafnir. Michael Billington hjá Guardian gaf verkinu aðeins þrjár stjörnur en Quentin Letts hjá Daily Mail sagðist hafa haft nokkuð gaman af því.

Wertenbaker segir að í veislunni, sem blaðið Evening Standard hélt í Royal Opera House, hafi fyrst verið um að ræða móttöku með kampavíni, síðan tók við miðdegisverður með eins miklu víni og menn gátu í sig látið.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

„Óbærilegt álag“

03:28 Andlát bandarísku söngkonunnar Whitney Houston hafði áhrif á alla heimsbyggðina. Meðal þeirra sem tjáðu sig um það var Simon Cowell við CNN fréttastofuna. Hann sagði álagið óbærilegt á stjörnur sem Houston, og að hún hefði kynnst röngum mönnum með þeim afleiðingum sem fylgdu. Meira »

„Mjög sérstök tilfinning“

Jónsi og Greta Salóme.
Í gær, 23:12 „Mjög sérstök tilfinning,“ sagði Jón Jósep Snæbjörnsson, Jónsi, eftir að ljóst var að hann færi með Gretu Salóme til Bakú í Aserbaídjan til að keppa fyrir hönd Íslands í Evróvisjón. Jónsi sem tekur þátt í Evróvisjón í annað skipti sagðist ekki alveg hafa náð utan um þá staðreynd enn. Meira »

„Ég er í skýjunum“

Greta Salóme og Jónsi í kvöld.
Í gær, 23:35 „Ég er í skýjunum,“ sagði Greta Salóme Stefánsdóttir, texta- og lagahöfundur lagsins Mundu eftir mér sem verður framlag Íslands í Evróvisjón-keppninni í Aserbaídsjan í maí. Greta sagðist vilja þakka sínum nánustu og samstarfsfélögum, en nú ætlaði hún að njóta kvöldsins og leyfa því að líða. Meira »

Jónsi og Greta til Bakú

Jónsi og Greta í Hörpu.
Í gær, 22:29 Mundu eftir mér er framlag Íslands til Evróvisjón-keppninnar í Aserbaídsjan í maí. Íslenska framlagið keppir í fyrri hluta fyrri undanriðils þann 22. maí en aðalkeppnin fer fram 26. maí. Símakosning auk dómnefndar skar úr um hvaða lag var valið. Meira »

finnur.is