Nafn tónlistar- og ráðstefnuhússins opinberað í dag, en því verður gefið nafn við hátíðlega athöfn á hafnarbakkanum, Austurbakka við húsið kl. 15.30.
Efnt var til samkeppni um nafn á húsið í febrúar í fyrra og létu viðbrögð ekki á sér standa. Nú er komið að því að kynna hvaða nafn varð fyrir valinu.
Af því tilefni mun Stórsveit Samma, Samúels Samúelssonar básúnuleikara spila og í tilefni nafngjafarinnar verður boðið upp á, kakó og kleinur á hafnarbakkanum, Austurbakka, frá kl. 15.30-16.30. Allir eru hjartanlega velkomnir, en gengið er inn á svæðið frá Geirsgötu.