Veröld/Fólk
| mbl
| 15.12.2009
| 9:33
Coldplay selur græjur á eBay
Breska hljómsveitin Coldplay hyggst selja ýmsa muni tengdum sveitinni, m.a. hljóðfæri og platínum diska, á uppboðsvefnum eBay. „End Of Decade Clearout Sale“ kallast bílskúrssala fjórmenninganna og mun allur ágóði renna til góðgerðarsamtakanna Kids Company.
Næstkomandi fimmtudag, þann 17. desember, verður hægt að bjóða í munina (frá kl. 17 að íslenskum tíma). Uppboðið stendur fram á gamlárskvöld, að því er fram kemur á vef breska útvarpsins.
Á vef Coldplay að liðsmennirnir muni annað hvort árita gripina eða láta áritað vottorð, sem á að staðfesta uppruna gripanna, fylgja með í kaupunum.
Hægt verður að sjá á vef sveitarinnar þá muni sem verða boðnir upp.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









