Milljörðum sáldrað yfir Spán rétt fyrir jól
Spænska lottóið El Gordo, eða Sá feiti, sem er stærsta lottó í heimi ef litið er til vinningsupphæða, dreifði í dag peningum og væntanlega trylltri gleði um Spán, en þar er eitt mesta atvinnuleysið í allri Evrópu.
Dregnir voru út vinningar sem nemur 2,32 milljörðum evra. Það jafngildir vel á fimmta hundrað milljarða króna. Til samanburðar má nefna að Icesave-skuldbindingarnar eru eitthvað yfir 700 milljarðar króna.
Fyrsti vinningur fór þetta árið til 1.950 vinningshafa sem höfðu talnarununa 78294 á miðum sínum. Hver og einni þeirra fékk 300.000 evrur í sinn hlut, eða um 55 milljónir króna.
Allir miðarnir með þessu númeri voru seldir í söluturni í verkamannahverfi í Tetuan-hverfi í Madríd, en þar búa margir innflytjendur frá Suður-Ameríku. Sabino Calderon, fimmtugur atvinnulaus múrari frá Ekvador, var einn þeirra sem fengu fyrsta vinninginn.
„Með þessum peningum ætla ég í fyrsta lagi að heimsækja konu mína og börn sem búa í Ekvador," sagði hann blaðamönnum. Hann hefur ekki séð fjölskylduna sína í þrjú ár.
Sá feiti er dreginn út 22. desember ár hvert og er til þess gerður að sem flest fólk á Spáni fái væna búbót rétt fyrir jólin.








