Jólahafurinn í Gävle brenndur

Aðeins grindin er eftir af jólahafrinum. Myndin er úr vefmyndavél á Hallartorginu í Gävle. stækka

Aðeins grindin er eftir af jólahafrinum. Myndin er úr vefmyndavél á Hallartorginu í Gävle.

Þrátt fyrir miklar öryggisráðstafanir tókst skemmdarvörgum að brenna jólahafurinn á Hallartorginu í sænska bænum Gävle í nótt. Tilkynnt var til lögreglunnar klukkan 3 í nótt að hafurinn stæði í björtu báli.

„Það var engu hægt að bjarga," sagði vakthafandi lögreglumaður við sænsku fréttastofuna TT.  

Enginn hefur verið handtekinn fyrir skemmdarverkið. Þetta var í 43. skipti, sem 13 metra hár jólahafur var reistur á Hallartorginu í  Gävle. Flest árin hefur hafinn verið brenndur eða skemmdur með öðrum hætti. Reynt hefur verið að úða hálmhafurinn með eldvarnarefnum en það mæltist ekki vel fyrir hjá bæjarbúum þar sem hafurinn varð mislitur. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Skaut í sundur fartölvu dóttur sinnar

Tommy Jordan í myndbandinu.
Í gær, 21:04 Myndband af bandarískum karlmanni sem refsar unglingsdóttur sinni með því að skjóta af skammbyssu á fartölvu hennar hefur vakið hörð viðbrögð á netinu og yfir tvær milljónir manna skoðað það á Youtube. Refsingin var tilkomin vegna færslu stúlkunnar á Facebook, þar sem hún kvartar yfir foreldrum sínum. Meira »

Biðja fyrir heilbrigðum býflugum

Prestur í rétttrúnaðarkirkjunni biður til heilags Haralambos um betri tíð.
Í gær, 17:45 Meðlimir í rétttrúnaðarkirkjunni í Búlgaríu tilbiðja í dag dýrlinginn Haralambos, verndara býflugna. Biður fólk dýrlinginn að vernda heimili sín og aflétta frosthörkunum í landinu. Meira »

Munir úr Á hverfanda hveli brunnu

Vivien Leigh og Clark Gable í hlutverkum sínum í Á hverfanda hveli.
Í gær, 17:58 Talið er að munir úr kvikmyndinni Á hverfanda hveli, Gone with the Wind, hafi orðið eldi að bráð í fyrrinótt. Munirnir voru geymdir í safninu Vegurinn til Töru í Atlanta í Bandaríkjunum. Meira »

Einfættur fíkniefnasali reyndi að flýja

Maðurinn var með 120 grömm af kókaíni innvortis.
í fyrradag Bandarískur fíkniefnasali sem lögregla í Jacksonwille, í Flórídaríki, hafði afskipti af á dögunum reyndi að flýja undan laganna vörðum. Það væri ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að maðurinn sem er á þrítugsaldri er einfættur. Meira »

finnur.is