Facebook-skilnuðum fjölgar

stækka

Árni Sæberg

Stöðugt fleiri Bretar komast á snoðir um ótryggð maka sinna á netinu. Samskiptavefurinn Facebook er nú nefndur í um fimmtungi allra skilnaðarmála á Bretlandi sem ástæða fyrir því að hjón vilja skilja að skiptum. 

Breska blaðið Daily Telegraph segir, að fólk nefni í auknum mæli, að það hafi komist að því að makinn var að daðra með óviðurkvæmilegum hætti við aðra á Facebook.  Eru hugbúnaðarfyrirtæki sögð nýta sér þessa þróun með því að bjóða forrit, sem gerir fólki kleift að njósna um netsiði makans. 

Telegraph segir m.a. frá 35 ára gamalli konu, Emmu Brady, sem sá sér til mikillar undrunar að eiginmaður hennar var að skilja við hana og hafði breytt inngangstextanum á Facebook-síðu sinni á eftirfarandi hátt: Neil Brady hefur slitið hjónabandi sínu og Emmu Brady.

Á síðasta ári skildi Amy Taylor, 28 ára gömul kona, við David Pollard, eiginmann sinn, þegar hún komst að því að hann átti í sýndarástarævintýri við aðra konu í netleiknum Second Life þar sem spilarar búa sér til annan persónuleika.  Pollard og konan í leiknum höfðu aldrei hist augliti til auglitis. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Tókst að góma flóttamörgæsina 337

Mörgæsin var á flótta í tvo mánuði.
25.5. Ársgömul mörgæs sem flúði Sædýrasafnið í Tókýó hefur loks náðst. Í mars tókst henni að henni flýja með því að klifra yfir vegg og renna sér síðan undir girðingu. Meira »

Er elst Íslendinga

Guðríður Guðbrandsdóttir á heimili sínu í Fururgerði 1.
23.5. Guðríður Guðbrandsdóttir er elst Íslendinga og heldur upp á 106 ára afmæli sitt í dag. Guðríður býr í þjónustuíbúð fyrir aldraða í Reykjavík og er vel ern. Hún fer alltaf í hádegismat og í leikfimi tvisvar í viku. Meira »

Bara tvær flugur á almenningssalerni

Frá Torgi hins himneska friðar í Peking
24.5. „Aðeins mega tvær flugur finnast inni á hverju almenningssalerni“ segir í nýútgefnum reglum yfirvalda í Peking.   Meira »

Tekist á um kynfæri Zuma

Myndin The Spear eftir suður-afríska listamanninn Brett Murray hefur vakið hörð viðbrögð en á myndinni ...
22.5. Tveir menn sáust á mynd vinna skemmdarverk málverki af forseta Suður-Afríku, Jacob Zuma, en á myndinni sést hann stilla sér upp sem Lenín með kynfærin úti. Tekist er á um myndina fyrir dómi í Suður-Afríku en flokkur forsetans er ósáttur við myndina. Meira »

finnur.is