Besta starf í heimi kostaði hann næstum lífið

Ben Southall glaður yfir draumastarfinu. stækka

Ben Southall glaður yfir draumastarfinu. Reuters

Englendingurinn Ben Southall fékk „besta starf í heimi" á árinu: Að hafa í hálft ár umsjón með  hitabeltiseyjunni Hamilton, sem er skammt frá ströndum Queensland í Ástralíu. Nú segir hann að þetta starf hafi næstum kostað sig lífið.

Í starfinu, sem tugir þúsunda manna sóttu um, fólst að dvelja á Hamiltoneyju við kóralrifið mikla við að kafa og sigla við eyjuna og blogga um reynslu sína og koma svæðinu á framfæri við umheiminn. Fyrir þetta fékk hann rúmar 15 milljónir króna í laun.

Í síðustu viku, þar sem Southall svamlaði í heitum sjónum, fann hann skyndilega fyrir sting í öðrum handleggnum. Skömmu síðar fann hann fyrir dofa í útlimunum og leitaði þá læknis. Í ljós kom, að eitruð marglytta hafði stungið hann.  

Southall, sem er 34 ára, slapp með skrekkinn vegna þess hve fljótt hann komst undir læknishendur og fékk rétta meðhöndlun. Hann fékk hins vegar hita, höfuðverk, andþrengsli og háan blóðþrýsting í kjölfarið.  

„Og ég sem ætlaði að nota síðustu dagana á Hamiltoneyju til að slappa af," segir hann á bloggsíðu sinni.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

„Óbærilegt álag“

03:28 Andlát bandarísku söngkonunnar Whitney Houston hafði á alla heimsbyggðina. Meðal þeirra sem tjáðu sig um það var Simon Cowell við CNN fréttastofuna. Hann sagði álagið óbærilegt á stjörnur sem Houston, og að hún hefði kynnst röngum mönnum með þeim afleiðingum sem fylgdu. Meira »

„Mjög sérstök tilfinning“

Jónsi og Greta Salóme.
Í gær, 23:12 „Mjög sérstök tilfinning,“ sagði Jón Jósep Snæbjörnsson, Jónsi, eftir að ljóst var að hann færi með Gretu Salóme til Bakú í Aserbaídjan til að keppa fyrir hönd Íslands í Evróvisjón. Jónsi sem tekur þátt í Evróvisjón í annað skipti sagðist ekki alveg hafa náð utan um þá staðreynd enn. Meira »

„Ég er í skýjunum“

Greta Salóme og Jónsi í kvöld.
Í gær, 23:35 „Ég er í skýjunum,“ sagði Greta Salóme Stefánsdóttir, texta- og lagahöfundur lagsins Mundu eftir mér sem verður framlag Íslands í Evróvisjón-keppninni í Aserbaídsjan í maí. Greta sagðist vilja þakka sínum nánustu og samstarfsfélögum, en nú ætlaði hún að njóta kvöldsins og leyfa því að líða. Meira »

Jónsi og Greta til Bakú

Jónsi og Greta í Hörpu.
Í gær, 22:29 Mundu eftir mér er framlag Íslands til Evróvisjón-keppninnar í Aserbaídsjan í maí. Íslenska framlagið keppir í fyrri hluta fyrri undanriðils þann 22. maí en aðalkeppnin fer fram 26. maí. Símakosning auk dómnefndar skar úr um hvaða lag var valið. Meira »

finnur.is