Allt hægt á Facebook

stækka

Reuters

Brandon Neely, fyrrum fangavörður í Guantanámo-búðunum á Kúbu fór nýverið til Bretlands til þess að hitta tvo fyrrum fanga bandarískra stjórnvalda í búðunum. Neely hafði upp á föngunum gegnum samskiptavefinn Facebook en samviskan hefur nagað hann allt frá því hann lét af störfum sem fangavörður. Hann vildi því reyna að hafa upp á breskum föngum sem voru í haldi í búðunum og biðja þá fyrirgefningar á ýmsu sem þar gerðist.

Brandon Neely, 29 ára, var fangavörður í Guantanamo búðunum í sex mánuði árið 2002. Eftir það var hann sendur til Íraks þar sem hann gegndi herþjónustu.  Hann hætti í bandaríska hernum árið 2005 og gekk til liðs við lögregluna. Neely segir í samtali við BBC að hann hafi tekist á við reiði og sektarkennd yfir þeirri misnotkun sem hann segist hafa orðið vitni að í fangabúðunum á meðan hann starfaði þar. 

Með aðstoð Facebook komst hann á ný í samband við Bretana Ruhal Ahmed  og Shafiq Rasul og urðu fagnaðarfundir þegar þeir hittust á ný í Bretlandi en Neely hafði ekki hitt þá frá árinu 2002, þegar þeir voru fangar en hann fangavörður. Án Facebook hefi örugglega ekki orðið að þessum endurfundum, segir á vef BBC.

Ahmed, sem er fæddur og uppalinn í Tipton á Englandi var meðal hundruð erlendra fanga sem var haldið í búðunum á grundvelli hryðjuverkalaga.

Neely segir að Guantanamo búðirnar hafi verið skelfilegur staður þrátt fyrir að öðru sé haldið fram í fréttum í Bandaríkjunum.

„Í fréttum var alltaf reynt að láta Guantanamo líta út eins og frábæran stað," segir Neely. „Til að mynda að það hafi verið komið vel fram við fangana. En það var ekki þannig,"  segir Neely í samtali við BBC og bætir við að hann hafi unnið við að setja saklaust fólk í búr.

Í fyrstu segist hann hafa trúað orðum varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, Donald Rumsfeld, um að fangarnir væru þeir verstu í heimi. En eftir að hafa kynnst  enskumælandi föngum fór hann að fá bakþanka og farið að efast um að þeir væru hryðjuverkamenn.

Ýtarlega frásögn af endurfundum þeirra er að finna á vef BBC

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Skaut í sundur fartölvu dóttur sinnar

Tommy Jordan í myndbandinu.
Í gær, 21:04 Myndband af bandarískum karlmanni sem refsar unglingsdóttur sinni með því að skjóta af skammbyssu á fartölvu hennar hefur vakið hörð viðbrögð á netinu og yfir tvær milljónir manna skoðað það á Youtube. Refsingin var tilkomin vegna færslu stúlkunnar á Facebook, þar sem hún kvartar yfir foreldrum sínum. Meira »

Biðja fyrir heilbrigðum býflugum

Prestur í rétttrúnaðarkirkjunni biður til heilags Haralambos um betri tíð.
Í gær, 17:45 Meðlimir í rétttrúnaðarkirkjunni í Búlgaríu tilbiðja í dag dýrlinginn Haralambos, verndara býflugna. Biður fólk dýrlinginn að vernda heimili sín og aflétta frosthörkunum í landinu. Meira »

Munir úr Á hverfanda hveli brunnu

Vivien Leigh og Clark Gable í hlutverkum sínum í Á hverfanda hveli.
Í gær, 17:58 Talið er að munir úr kvikmyndinni Á hverfanda hveli, Gone with the Wind, hafi orðið eldi að bráð í fyrrinótt. Munirnir voru geymdir í safninu Vegurinn til Töru í Atlanta í Bandaríkjunum. Meira »

Einfættur fíkniefnasali reyndi að flýja

Maðurinn var með 120 grömm af kókaíni innvortis.
í fyrradag Bandarískur fíkniefnasali sem lögregla í Jacksonwille, í Flórídaríki, hafði afskipti af á dögunum reyndi að flýja undan laganna vörðum. Það væri ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að maðurinn sem er á þrítugsaldri er einfættur. Meira »

finnur.is