Aukið áhorf á Golden Globes hátíðina
Samkvæmt áhorfstölum horfðu 16,9 milljónir Bandaríkjamanna á Golden Globe verðlaunahátíðina sl. sunnudagskvöld, og er það 14% aukning á milli ára.
Breski gamanleikarinn Ricky Gervais var aðalkynnir hátíðarinnar, sem var sýnd í beinni útsendingu um gjörvöll Bandaríkin. En það hefur ekki verið gert undanfarin ár, þar sem seinkun hefur verið á útsendingunni vegna tímamismunar í Bandaríkjunum.
Stærsta ár Golden Globe hátíðarinnar, þ.e. hvað varðar áhorf, var árið 2004, þegar 26,8 milljónir horfðu á útsendinguna. Það ár var þriðja myndin í Hringadróttinssögu valin besta myndin. Í ár var það Avatar.
Það var mikill munur á áhorfinu í ár og árið 2007 þegar handritshöfundar fóru í verkfall. Þá horfðu aðeins um sex milljónir Bandaríkjamanna á hátíðina, sem var lítið annað en blaðamannafundur.
-
Klám í Köben?
- Flýr stórhættulegan eltihrelli
- Skaut í sundur fartölvu dóttur sinnar
- Eltihrellir Madonnu handtekinn
-
Harry prins kominn með þyrlupróf
- Munir úr Á hverfanda hveli brunnu
- Biðja fyrir heilbrigðum býflugum
- VÍS og Borgarleikhúsið í samstarf
- Koníak úr frönsku byltingunni til sölu
- McCartney fékk stjörnu
- Þetta er algjör hvirfilbylur
- Keppa fyrir Ísland í Stora Daldansen
- Fallinn fyrir Carmen Electra
- Ástfangin á sviðinu
- Eltihrellir Madonnu strauk af geðsjúkrahúsi
- Ljóshátíð á Suðurlandsbraut
- Vill flytja til Frakklands
- Sagði Elmo búa yfir töframætti
-
Flamingófuglar frusu fastir
- Tortryggin á stefnumót á netinu
- Valdimar ásamt Pink & Floyd á Bar 11
- Buika með tónleika á Listahátíð í Reykjavík
- Svanfríður í banastuði








