Ögrandi list og óvænt viðbrögð

stækka

enginn

Steven C. Dubin frá Columbia-háskóla, flytur fyrirlestur um ögrandi list og viðbrögð við henni í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu, næstkomandi fimmtudag kl. 20.

Fyrirlesturinn, sem kallast Arresting Images: Impolitic Art and Unexpected Reactions, verður fluttur á ensku, en Dubin hyggst fjalla um myndlistarmenn og sýningar sem hafa verið mjög umdeildar og átök vegna þeirra vestan hafs. Steven C. Dubin er Fulbright-gestakennari í safnafræði við Háskóla Íslands og er fyrirlesturinn unninn í samvinnu við Háskólann.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

„Ótrúlega íslenskur og svalur“

Peter Máté við flygilinn í Hofi.
19:16 Nýtt tónverk eftir Jón Ásgeirsson var frumflutt á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands í dag. Píanóleikarinn Peter Máté flutti verkið ásamt sinfóníunni en Jón hefur lengi fylgst með ferli Peters og samdi verkið sérstaklega fyrir hann. Meira »

Fólk víða að minnist Houston myndskeið

Heimurinn bregst við láti Houston
15:51 Lát bandarísku söngkonunnar Whitney Houston virðist hafa komið sem reiðarslag yfir fólk víðs vegar um heim. Eins og í hinum vestræna heimi minnist fólk í Asíu og Ástralíu söngkonunnar með trega. Meira »

Styttuþjófar herja á London

Listaverki Barböru Hepworth var rænt úr Dulwich-garðinum og það selt í brotajárn.
18:05 Þjófagengi fara nú ránshendi um London og stela styttum úr málmi, bræða þær og selja í brotajárn. Verðhækkun á kopar, bronsi og öðrum málmum hvetur þjófana til ódæðisins. Meira »

Sektir fyrir að kasta svifdiskum

Hættulegur leikur? Maður leikur sér með svifdisk á ströndinn Venice Beach í Kaliforníu.
15:18 Sólardýrkendur geta nú átt á hættu að verða sektaðir fyrir að henda boltum og svifdiskum sín á milli á ströndum Los Angeles-sýslu í Kaliforníu. Sektin nemur 12 þúsund krónum. Meira »

finnur.is