Knattspyrnutryllitæki

Sæktu Flash-spilarann til að spila myndskeiðið

Fyrirtækið Castrol hefur svipt hulunni af vél sem getur spyrnt fótbolta af miklum krafti, en hraðinn mælist yfir 200 km á klst. Fyrirtækið er eitt af styrktaraðilum heimsmeistaramótsins í knattspyrnu, sem fer fram í Suður-Afríku í sumar. Það kynnti sparkvélina í Japan.

Forsvarsmenn fyrirtækisins Castrol segir að knattspyrnusnillingurinn Christiano Ronaldo sé kominn með harða samkeppni, en skotin hjá Ronaldo mælast á um 130 km hraða.

Fyrrverandi landsliðsmaður Japana mætti á svæðið þegar vélin var kynnt. Hann gat náð um 100 km hraða. Vélin, sem kallast Ichi-Go, sparkaði knettinum tvöfalt hraðar.

Castrol mun sýna vélina vítt og breitt í Japan á þessu ári. Vélin er hins vegar það öflug að hún verður ekki notuð við knattspyrnuæfingar af öryggisástæðum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Tólf ára bjargaði ættaróðalinu

Í gær, 21:37 Tólf ára piltur frá Wisconsin í Bandaríkjunum er orðinn hetja innan fjölskyldu sinnar, ef ekki víðar, eftir að hann bjargaði ömmu sinni frá því að vera borin út úr húsi sínu, sem hafði verið í eigu fjölskyldunnar í þrjá ættliði. Meira »

Munir úr Á hverfanda hveli brunnu

Vivien Leigh og Clark Gable í hlutverkum sínum í Á hverfanda hveli.
í fyrradag Talið er að munir úr kvikmyndinni Á hverfanda hveli, Gone with the Wind, hafi orðið eldi að bráð í fyrrinótt. Munirnir voru geymdir í safninu Vegurinn til Töru í Atlanta í Bandaríkjunum. Meira »

Skaut í sundur fartölvu dóttur sinnar

Tommy Jordan í myndbandinu.
í fyrradag Myndband af bandarískum karlmanni sem refsar unglingsdóttur sinni með því að skjóta af skammbyssu á fartölvu hennar hefur vakið hörð viðbrögð á netinu og yfir tvær milljónir manna skoðað það á Youtube. Refsingin var tilkomin vegna færslu stúlkunnar á Facebook, þar sem hún kvartar yfir foreldrum sínum. Meira »

Biðja fyrir heilbrigðum býflugum

Prestur í rétttrúnaðarkirkjunni biður til heilags Haralambos um betri tíð.
í fyrradag Meðlimir í rétttrúnaðarkirkjunni í Búlgaríu tilbiðja í dag dýrlinginn Haralambos, verndara býflugna. Biður fólk dýrlinginn að vernda heimili sín og aflétta frosthörkunum í landinu. Meira »

finnur.is