Filippseysku fangarnir slá aftur í gegn

Filippseysku fangarnir hafa enn á ný slegið í gegn á netinu stækka

Filippseysku fangarnir hafa enn á ný slegið í gegn á netinu Reuters

Fangarnir dansandi í öryggisfangelsinu á Filippseyjum hafa endurtekið leikinn. Enn á ný hefur myndband með hópdansi þeirra í fangelsisgarðinum við tónlist Michael Jackson slegið í gegn á internetinu. Nú er það reyndar með öðrum hætti en áður, því í þetta skiptið fengu þeir heimsókn frá danshöfundi Michael Jackson sem samdi með þeim dansspor við lög úr myndinni This is it sem kom út eftir dauða hans.

Myndbandið er því í betri gæðum en fyrri dansmyndbönd fanganna, enda er það framleitt af Sony Entertainment sem liður í útgáfu heimildamyndarinnar „This is it“, um síðasta tónleikaferðalag poppkóngsins sem aldrei varð af. Myndbandið var sett inn á föstudag og hefur þegar verið skoðað 850 þúsund sinnum.

37 milljónir hafa horft á Thriller dansinn

Danshöfundur Jacksons sjálfs, Travis Payne, leiðir í myndbandinu dans 1.200 fanga sem klæddir eru appelsínugulum fangelsisklæðnaði að neðan, en að ofan hafa þeir fengið stuttermaboli sem merktir eru DVD disknum sem kemur út í lok vikunnar. Að sögn Sony varði Payen tveimur mánuðum í öryggisfangelsinu til að æfa dansinn.

Sumir myndu því segja að filippseysku fangarnir hafi orðið markaðsöflunum að bráð, en innlifun þeirra í dansinum hefur ekki dvínað. Fangarnir öðluðust upphaflega heimsfrægð árið 2007 þegar sett var á netið myndband sem sýnir þá dansa við "Thriller", einn frægasta smell Jackson. Thriller myndbandið hefur síðan verið skoðað 37,5 milljón sinnum á myndbandavefnum YouTube og fleiri myndbönd fylgt í kjölfarið, þ.á.m. með dansi til heiðurs poppkónginum  sem  tekið var upp aðeins 10 klst. eftir að föngunum barst andlátsfregnin í júní í fyrra.

Yfirmenn fangelsisins hófu danskennslu sem tilraun til að stilla til friðar innan veggja fangelsisins, bæta samskipti fanganna og tækifæri þeirra til endurhæfingar. Bæði fangaverðir og fangarnir sjálfir hafa sagt að verkefnið hafi skilað frábærum árangri, þar sem slagsmálum meðal fanga hafi fækkað verulega síðan þeir byrjuðu að dansa.

Nýja myndbandið má sjá hér

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Styttuþjófar herja á London

Listaverki Barböru Hepworth var rænt úr Dulwich-garðinum og það selt í brotajárn.
Í gær, 18:05 Þjófagengi fara nú ránshendi um London og stela styttum úr málmi, bræða þær og selja í brotajárn. Verðhækkun á kopar, bronsi og öðrum málmum hvetur þjófana til ódæðisins. Meira »

Tólf ára bjargaði ættaróðalinu

í fyrradag Tólf ára piltur frá Wisconsin í Bandaríkjunum er orðinn hetja innan fjölskyldu sinnar, ef ekki víðar, eftir að hann bjargaði ömmu sinni frá því að vera borin út úr húsi sínu, sem hafði verið í eigu fjölskyldunnar í þrjá ættliði. Meira »

Sektir fyrir að kasta svifdiskum

Hættulegur leikur? Maður leikur sér með svifdisk á ströndinn Venice Beach í Kaliforníu.
Í gær, 15:18 Sólardýrkendur geta nú átt á hættu að verða sektaðir fyrir að henda boltum og svifdiskum sín á milli á ströndum Los Angeles-sýslu í Kaliforníu. Sektin nemur 12 þúsund krónum. Meira »

Skaut í sundur fartölvu dóttur sinnar

Tommy Jordan í myndbandinu.
10.2. Myndband af bandarískum karlmanni sem refsar unglingsdóttur sinni með því að skjóta af skammbyssu á fartölvu hennar hefur vakið hörð viðbrögð á netinu og yfir tvær milljónir manna skoðað það á Youtube. Refsingin var tilkomin vegna færslu stúlkunnar á Facebook, þar sem hún kvartar yfir foreldrum sínum. Meira »

finnur.is