Veröld/Fólk
|
Veraldarfréttir
| mbl
| 27.1.2010
| 15:12
13 ár að staðfesta heimsmet í vindi
Samráðsnefnd Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar um heimsveðurfar og met hefur nú loks staðfest, að sett hafi verið heimsmet í vindi klukkan 10:55 á Barrow-eyju við norðvesturströnd Ástralíu þann 10. apríl 1996. Náði vindhraðinn í hviðu 113,2 metrum á sekúndu.
Vindhviðan tengdist fellibylnum Olivia sem fór þarna yfir. Fram kemur á vef Veðurstofunnar, að meiri vindhraði hafi þó mælst með ratsjá í skýstrokkum en aldrei með hefðbundnum vindhraðamælum.
Þrjár vindhviður mældust yfir 100 m/s. Að sögn Veðurstofunnar hefur staðið í mönnum að mesti 5-mínútna meðalvindhraði í veðrinu var ekki nema 48,9 m/s.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









