Stalínsgos á markað

Jósef Stalín. stækka

Jósef Stalín. mbl.is

Andlitsmynd af Jósef Stalín verður á flöskum nýs gosdrykkjar sem verður settur á markað í Rússlandi í næsta mánuði, að sögn rússneska dagblaðsins Komsomolskaja Pravda í gær. Stalínsgosið, freyðandi drykkur með sítrónubragði, er á meðal nokkurra drykkja sem verða seldir í tilefni af 67 ára afmæli sigurs Rússa í orrustunni um Stalíngrad í síðari heimsstyrjöldinni.

„Ég tel að það verði eftirspurn eftir þessum drykk,“ sagði forstjóri fyrirtækisins Pivovar, sem framleiðir drykkinn.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Tólf ára bjargaði ættaróðalinu

Í gær, 21:37 Tólf ára piltur frá Wisconsin í Bandaríkjunum er orðinn hetja innan fjölskyldu sinnar, ef ekki víðar, eftir að hann bjargaði ömmu sinni frá því að vera borin út úr húsi sínu, sem hafði verið í eigu fjölskyldunnar í þrjá ættliði. Meira »

Munir úr Á hverfanda hveli brunnu

Vivien Leigh og Clark Gable í hlutverkum sínum í Á hverfanda hveli.
í fyrradag Talið er að munir úr kvikmyndinni Á hverfanda hveli, Gone with the Wind, hafi orðið eldi að bráð í fyrrinótt. Munirnir voru geymdir í safninu Vegurinn til Töru í Atlanta í Bandaríkjunum. Meira »

Skaut í sundur fartölvu dóttur sinnar

Tommy Jordan í myndbandinu.
í fyrradag Myndband af bandarískum karlmanni sem refsar unglingsdóttur sinni með því að skjóta af skammbyssu á fartölvu hennar hefur vakið hörð viðbrögð á netinu og yfir tvær milljónir manna skoðað það á Youtube. Refsingin var tilkomin vegna færslu stúlkunnar á Facebook, þar sem hún kvartar yfir foreldrum sínum. Meira »

Biðja fyrir heilbrigðum býflugum

Prestur í rétttrúnaðarkirkjunni biður til heilags Haralambos um betri tíð.
í fyrradag Meðlimir í rétttrúnaðarkirkjunni í Búlgaríu tilbiðja í dag dýrlinginn Haralambos, verndara býflugna. Biður fólk dýrlinginn að vernda heimili sín og aflétta frosthörkunum í landinu. Meira »

finnur.is