Prestur tekur fingraför

Frá Gryfow Slaski. stækka

Frá Gryfow Slaski.

Pólskur prestur hefur brugðið á það ráð að setja upp fingrafaraskanna við kirkjudyrnar til að fylgjast með mætingu skólabarna. Tæknin leysir af hólmi gestabók kirkjunnar og eru börnin almennt ánægð með framtakið, telja það spara tíma og koma í veg fyrir biðraðir.

Fjallað var um málið í pólska dagblaðinu Gazeta Wyborcza en þar kom fram að þegar börnin hafa mætt 200 sinnum þurfa þau ekki að mæta í próf áður en þau eru fermd.

Kirkjan er í bænum Gryfow Slaski og er presturinn, Grzegorz Sowa, ánægður með reynsluna af kerfinu fram að þessu.

Mörg barnanna ættu að sleppa við prófið enda er kirkjusókn mjög góð í Póllandi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Tókst að góma flóttamörgæsina 337

Mörgæsin var á flótta í tvo mánuði.
25.5. Ársgömul mörgæs sem flúði Sædýrasafnið í Tókýó hefur loks náðst. Í mars tókst henni að henni flýja með því að klifra yfir vegg og renna sér síðan undir girðingu. Meira »

Er elst Íslendinga

Guðríður Guðbrandsdóttir á heimili sínu í Fururgerði 1.
23.5. Guðríður Guðbrandsdóttir er elst Íslendinga og heldur upp á 106 ára afmæli sitt í dag. Guðríður býr í þjónustuíbúð fyrir aldraða í Reykjavík og er vel ern. Hún fer alltaf í hádegismat og í leikfimi tvisvar í viku. Meira »

Bara tvær flugur á almenningssalerni

Frá Torgi hins himneska friðar í Peking
24.5. „Aðeins mega tvær flugur finnast inni á hverju almenningssalerni“ segir í nýútgefnum reglum yfirvalda í Peking.   Meira »

Tekist á um kynfæri Zuma

Myndin The Spear eftir suður-afríska listamanninn Brett Murray hefur vakið hörð viðbrögð en á myndinni ...
22.5. Tveir menn sáust á mynd vinna skemmdarverk málverki af forseta Suður-Afríku, Jacob Zuma, en á myndinni sést hann stilla sér upp sem Lenín með kynfærin úti. Tekist er á um myndina fyrir dómi í Suður-Afríku en flokkur forsetans er ósáttur við myndina. Meira »

finnur.is