Punxsutawney Phil sá skuggann sinn

Punxsutawney Phil, frægasta múrmeldýr heims, sá skuggann sinn í morgun þegar hann skreið úr hýði sínu í Pennsylvaníu.. Samkvæmt þjóðtrúnni þýðir þetta, að veturinn í Bandaríkjunum mun vara í að minnsta kosti einn og hálfan mánuð í viðbót.

Að venju var Phil dreginn út úr hýðinu í bænum  Punxsutawney í Pennsylvaníu í morgun, 2. febrúar. Sérstakir siðameistarar múrmeldýrsins lýstu því yfir, að dýrið hefði varpað skugga og því væri vorið ekki í augsýn.

Saga Punxsutawney Phil nær til ársins 1887 en siðurinn er rakinn til þýskrar þjóðtrúar sem segir, að ef múrmeldýr í hýði sínu sjái skugga sinn á kyndilmessu 2. febrúar muni veturinn dragast á langinn. Síðan hefur Phil séð skuggann sinn 98 sinnum, í 15 skipti hefur hann ekki varpað skugga og ekki eru til skrár um 9 ár samkvæmt upplýsingum frá múrmeldýraklúbbi Punxsutawney. Orðstír  Phils óx mjög þegar kvikmyndin Múrmeldýradagurinn var gerð árið 1993. 

Þessi þýska þjóðtrú hefur einnig náð til Íslands, ef marka má þessa gömlu vísu:

Ef í heiði sólin sést
á sjálfa kyndilmessu,
snjóa vænta máttu mest,
maður, upp úr þessu.  

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Tókst að góma flóttamörgæsina 337

Mörgæsin var á flótta í tvo mánuði.
25.5. Ársgömul mörgæs sem flúði Sædýrasafnið í Tókýó hefur loks náðst. Í mars tókst henni að henni flýja með því að klifra yfir vegg og renna sér síðan undir girðingu. Meira »

Er elst Íslendinga

Guðríður Guðbrandsdóttir á heimili sínu í Fururgerði 1.
23.5. Guðríður Guðbrandsdóttir er elst Íslendinga og heldur upp á 106 ára afmæli sitt í dag. Guðríður býr í þjónustuíbúð fyrir aldraða í Reykjavík og er vel ern. Hún fer alltaf í hádegismat og í leikfimi tvisvar í viku. Meira »

Bara tvær flugur á almenningssalerni

Frá Torgi hins himneska friðar í Peking
24.5. „Aðeins mega tvær flugur finnast inni á hverju almenningssalerni“ segir í nýútgefnum reglum yfirvalda í Peking.   Meira »

Tekist á um kynfæri Zuma

Myndin The Spear eftir suður-afríska listamanninn Brett Murray hefur vakið hörð viðbrögð en á myndinni ...
22.5. Tveir menn sáust á mynd vinna skemmdarverk málverki af forseta Suður-Afríku, Jacob Zuma, en á myndinni sést hann stilla sér upp sem Lenín með kynfærin úti. Tekist er á um myndina fyrir dómi í Suður-Afríku en flokkur forsetans er ósáttur við myndina. Meira »

finnur.is